"Bára Halldórsdóttir eyddi upprunalegu Klausturs-upptökunni með viðhöfn á Gauknum í gærkvöldi. Með úrskurði Persónuverndar var Báru gert að eyða upptöku sinni. Vitni þurfa að vera að eyðingu slíkra gagna og ákvað Bára að slá því upp í sýningu með heitinu Báramótabrenna. Margrét Erla Maack dansari túlkaði eldinn á listrænan hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR"
Er þessi sandkassaleikur Persónuverndar fyrir fullorðana eða bannaður yfir 12 ára?
Vonandi eru til nóg af afritum úti um allt svo blautlegir draumar þingmanna um hitt kynið á þingi og langanir þeirra gleymist ekki. Það þótti nú víst einu sinni mannsbragur að því að sýni hinu kyninu athygli en það er víst búið að banna það alveg.
En hvaða tilgangur var með þessari fyrirskipun Helgu Þórisdóttur? Hver græddi mest á framkvæmdinni. Miðflokkurinn eða Bárumótabrennan á Gauknum?