hvað sem líður málþófi Miðflokksins á Alþingi.
Eftir næstu kosningar munu hlutföll þingstyrks og pólitískt landslag hafa breyzt nægilega til þess að sæstrengshugmyndum og framtíðarhorfum sameiginlegs orkumarkaðar hafi vaxið nægilegt ásmegin til grundvallarbreytinga á íslenskum orkumarkaði. Allir fyrirvarar sem menn eru að tala um núna sem góða og gildandi munu ekki koma til frekari álita á næsta áratug.
Orkuverð til almennings mun hækka verulega í takt við almennt orkuverð á markaðssvæðinu.En önnur lífskjör geta einnig batnað til mótvægis því. Hvernig verðhækkunum verður við komið hjá stórnotendum á Íslandi veit ég ekki svo gjörla en hef heyrt að á næsta áratug opnist samningslegar leiðir til slíks.
Eftir er að hanna sæstrengi af þeirri miklu gerð sem til verksins þarf. En líklega munu menn velja tveggja strengja útfærslu með viðkomu hjá frændum vorum í Færeyjum. Framhaldið þaðan er líklega erfiðara en leysist óháð Brexit sem öðru.
Líklega mun verða tekið fastar á flóttamannastraumnum en verið hefur á Íslandi og endursending hælisleitenda mun verða hafin í takt við breytingar á stjórnmálasviðinu. Þannig má hugsanlega ná einhverjum böndum á fólksfjölgun í álfunni sem er alger nauðsyn eigi að stýra umhverfismálum með einhverjum hætti.
Nýtt hagvaxtarskeið hefst á Íslandi á þessum tíma með nýjum vatnsaflsvirkjunum og grunnvirkjum. Hugsanlega koma einnig sjávarfallavirkjanir til sögunnar. Ég er ekki trúaður á mikinn framgang vindorkuvera vegna fáránlegs vægis mótmælenda af öllum gerðum og skiptir þá landfræðileg staðsetning mótmælandans afskaplega litlu máli miðað við hávaðastig það sem honum tekst að framkalla.
Allt þetta tel ég að verði að veruleika á næsta áratug. Á sama tíma hefur ESB gengið í gegn um vaxandi þrengingar svo að fylgi við inngöngu á Íslandi og upptöku evru mun hafa frekar minkað en ekki aukist. Ég tel því að Íslendingar muni enn hafa sína krónu í lok tímabilsins og standa utan ESB þó EES verði enn við einhverja heilsu.
Öll umræðan um 3. orkupakkann er því næsta brosleg í ljósi þess sem verða mun á næsta áratug þegar orkupakkar 4 og 5 hafa tekið gildi.
Hið pólitíska landslag á Íslandi mun breytast mikið þó ákvarðanataka af öllu tagi muni ekki hafa auðveldast verulega í landinu. Munar þar mestu að gömlu flokkarnir munu eiga meira undir högg að sækja en oft áður og getur kjölfestuleysi valdið óvæntum uppákomum víðar en varð um borð í Vasa-skipinu fyrir margt löngu.
En sæstrengir eru það sem koma skal og hugsanlega verða þeir einnig lagðir milli Grænlands og Íslands á þessu tímabili sem styrkir hinn sameiginlega orkumarkað enn frekar.