eru alsælir með Orkupakkann.
Herbert Herbertsson ritstjóri skrifar svo:
"...Útflutningur vistvæns rafmagns mun verða uppspretta mikillar velmegunar á Íslandi til ófyrirsjáanlegrar framtíðar. Geta Íslendingar þar litið til olíusjóðs Norðmanna, sem mun þó löngu verða uppurinn meðan vistvænt rafmagn mun enn mala gull fyrir Ísland.
Aðeins verður að gæta þess að allar virkjanir verði eign þjóðarinnar, eins og olíuvinnslan hjá Statoil Norðmanna. Það yrði þó að fá aðstoð erlendis frá við uppbyggingu kerfisins. Það gerðu Norðmenn einnig þegar þeir byggðu upp sitt olíuvinnslukerfi. Stóru alþjóðlegu olíufélögin fengu hlutdeild í hagnaðinum með því að leggja til sína þekkingu og fjármagn við borun og úrvinnslu olíunnar. Sá samningur var þó aðeins í gildi í ákveðin árafjölda, eða þar til þau fyrirtæki höfðu fengið sitt framlag endurgreitt í formi olíu og útlagðs fjármagns. Í dag er Statoil einrátt í olíuvinnslu við Noreg og allur hagnaður hennar rennur beint til norsku þjóðarinnar.
Með bestu kveðjum og áskorunum til ungra Íslendinga um að sækja fram og virkja auðlegð Íslands til hagsmuna fyrir land og þjóð."
Kommarnir á Kjarnanum eru orðnir föðurlandsvinir hinir mestu og Evrópusinnar með íhaldinu, viðreisn og pírötunum
-Bravó!