leave it out. Svo kenndi hún amma mín mér kommusetningu í ensku í gamla daga.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa líklega aldrei lært slíka reglu.
„Ég geri mér fulla grein fyrir gagnrýni á þessa innleiðingu, ég hef tekið hana alvarlega og við höfum lagst í mikla vinnu við greiningar, upplýsingagjöf og annað og erum enn þá að skoða þetta út frá því, en ég hræðist ekki þetta samtal og ég væri aldrei að leggja til að við værum að innleiða eitthvað sem ég teldi skaða hagsmuni Íslands eða Íslendinga,“ segir Þórdís Kolbrún.
Hún nefndi sérstaklega í ávarpi sínu á ársfundi Landsvirkjunar í dag að hópur fólks hygðist mótmæla innleiðingu orkupakkans og nota til þess slagorðið „Orkan okkar“, en félagasamtök með því nafni voru einnig stofnuð í haust, um það leyti er umræður um orkupakkann voru í hámæli, samkvæmt því sem fram kemur í fyrirtækjaskrá. Ráðherra segist hafa heyrt frá þessum samtökum.
„Ég hef bara heyrt af þessum hópi og hitt fulltrúa frá honum og á nú lyklakippu með þessu slagorði, en þetta er bara gagnrýni þeirra. Það er bara eðlilegt að fólk haldi fram gagnrýni á einhver mál og vilji upplýsta umræðu um viðamikil og flókin mál eins og þetta er í heild sinni, þrátt fyrir að akkúrat þriðji orkupakkinn sé tæknilegt framhald á fyrsta og öðrum og áframhald á þessari vegferð,“ segir Þórdís Kolbrún."
Það skal í ykkur samt. Þetta er nokkurn veginn samhljómur hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins séu eir spurðir um þennan 3. orkupakka. Þeir svara því til að hann skipti ekki máli því enginn sé sæstrengurinn.
Þeir svara því hinsvegar aldrei hvort Íslendingar muni ávallt ráða því hvort hingað verði lagður sæstrengur í anda orkupakkans.Sem ýmsir telja að sé ekki í anda samkomulagsins og ACER.