er grundvallarspurning til framtíðar.
Verði 3. orkupakkinn samþykktur af Sjálfstæðisflokknum eins og stefna virðist í, þá getur ýmislegt breyst hvað framtíðarorkunotkun landsmanna varðar.Það virðist sem þingmenn flokksins hafi tekið þá ákvörðun að engu skipti hvernig þessi pakki verði afgreiddur. Hvorki það hvort hann færi landsmönnum ávinning eða að hann skaði þá ekki beinlínis.
Undirritaður er hinsvegar þeirrar skoðunar, að taki einkaaðili ákvörðun um að leggja hingað sæstreng á sinn kostnað séum við Íslendingar komnir inn á orkumarkað Evrópusambandsins. Við getum ekki neitað honum að gera tilboð í að kaupa hér orku í samkeppni við landsmenn sem tæplega muni verða til lækkunar innlends orkuverðs.
Nota má raforku sem við framleiðum til að framleiða vetni innanlands. Þetta gerðum við í stórum stíl Aburðarverksmiðjunni sálugu í Gufunesi.
Nýlega pantaði Strætó marga vetnisvagna þar sem ný tækni hefur rutt sér til rúms í vetnisnotkun. Hugsanlega er þetta byrjun á meiru.
Útflutningur á vetni er líklega mun auðveldari en á raforku um sæstreng. Héröð í Bretlandi munu ætla að vetnisvæðast þó Bretland fljóti á gaspolli.
3. orkupakkinn getur þannig skipt meira máli en sumir vilja viðurkenna sem grundvallarmöguleika. jafnvel haft úrslitaáhrif á innlenda úrvinnslu orkunnar til framtíðar.