eins og maður gæti haldið ef maður tæki allt bókstaflega sem skrifað og skrafað er.
Páll Vilhjálmsson bloggarakóngur skrifar svo:
"Fjölmiðlar munu gera út á ríkisstyrki en ekki þjónustu við almenning, verði að veruleika lög um ríkisframlag til fjölmiðla.
Ríkisstuðningur við fjölmiðla felur í sér forskrift hvernig fjölmiðlar eigi að haga sér til að njóta fjárstuðnings. Fjölmiðlun verður einsleitari og nýsköpun takmarkaðri.
Nú þegar rekur ríkið fjölmiðil, RÚV, sem enginn myndi segja að væri háborg blaðamennsku eða faglegrar þjónustu við almenning.
Ef ríkinu er alvara með stuðningi við frjálsa fjölmiðlun ætti það að loka RÚV. Þeir fjölmiðlar sem ættu erindi við almenning myndu blómstra. "
Ég hlusta talsvert á Útvarp Sögu. Þó að mér finnist sumir sem tala þar sem fulltrúar þjóðarinnar vera litlar mannsvitsbrekkur og ekki mér til skemmtunar, þá fara þar fram skoðanaskipti og margt dúkkar upp sem vert er að fram komi.
Bæði Arnþrúður og Pétur eru komin til talsverðs þroska í víðsýni og kurteisi sem maður ber virðingu fyrir.Stöðin leitar stíft eftir stuðningi frá hlustendum svipað og NPR gerir í Bandaríkjunum.
Allt gott um það að segja og ekki held ég að það yrði henni til góðs eða blómsturs að fara að taka við opinberum styrkjum frá Lilju. Þvert á móti myndi það rýra trúverðugleikann og mun geðfelldara ef hún gæti haldið sjálfstæði sínu með almannastuðningi og verið engum háð.
RÚV heldur úti frábærri dagskrá alla daga eftir hádegi þar sem margar dagskrárperlur eru sýndar. Ég á bágt með að taka undir kröfur um að stöðinni sé lokað sem einhverri lausn á fjölmiðlamarkaði. Stendur bara ekki fólkið með RÚV með kostum og göllum? Það vill hreinlega auglýsa þar en ekki endilega frekar annarsstaðar. Það er lítil lausn að heimta bara lokun.
Hvað orsakar þá þennan sífellda ófrið um RÚV? Svarið liggur í augum uppi. Það er vinstri slagsíðan á fréttaflutningi stöðvarinnar. Hún virðist vera svo áberandi áberandi pólitísk að hægra fólki, loftslags-og innflytjendavantrúuðum og Trumpistum finnst sér misboðið.
Hver ber þar ábyrgðina? Er það nýframlengdur útvarpsstjórinn eða útvarpsráð? Skyldi ekki vera hægt að fara einhvern milliveg í þessum málum og lægja öldurnar? Yfirleitt láta samt þeir sjaldan völdin af hendi sem búnir eru að ná þeim eins og Maduro er kannski dæmi um. Er hugsanlega hægt að slaka eitthvað til?
Safn RÚV af efni og tækni er ómetanlegt og ekki liggur í augum uppi hver ætti með að fara ef krafa Páls og fleiri væri tekin alvarlega. Vilji fólkið auglýsa á RÚV má það þá ekki gera það. Er einhver á móti samkeppni? Er RÚV ekki í samkeppni hvað sem aðrir segja? Ferðastiklur Ómars og Láru eru til dæmis frábærar sem vandséð er hvort aðrir myndu gera betur.
Hringbraut er að gera frábæra hluti og líka N4 eins og Útvarp Saga. Fólk sem vill styrkja þessar stöðvar á að finna það hjá sjálfu sér að gera það. Ríkinu er algerlega ofaukið þar og bara skemmir. Treystum fólkinu og fyrirtækjunum til að velja.
RÚV er langt frá því að vera alvont þrátt fyrir Þorgerði og þjóðarskattinn.