Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Útþensla Kínverja

$
0
0

í Suður-Kínahafi er að verða ógn þó hægt fari. Ástralir eru þeir fyrstu ásamt Fillipseyjum sem verða varir við áganginum. Bandaríkin hafa áhyggjur af þrýstingnum og Japanir eru orðnir uggandi svo mjög, að kjarnorkuvígvæðing er eim ekki eins fjarlæg og áður.

Kínverjar eru makalaus þjóð. Dugnaði hennar og nægjusemi er við brugðið. Hún fær um hina ótrúlegustu hluti í  byggingum risamannvirkja. Viðskiptaviti hennar er líka við brugðið. En innviðirnir og efnahagslífið eru feysknir þar sem fjöldinn er svo gríðarlegur og kerfið viðkvæmt.  Landið sjálft dugar ekki til að brauðfæða fólkið. Þeir eru upp á Bandaríkjamarkað komnir til að komast af efnahagslega. Líklega eru þeir ekki miklir stuðningsmenn Donalds Trump sem vill draga úr innflutningi á iðnaðarvöru.

Og víst er að það eru blikurá lofti í efnahag Kínverja. Þeir hafa framleitt draugabæi til að halda uppi atvinnu. Þar glitrar stál og steinsteypa engum til nota. Það er holur hljómur í hagvextinum.

Stálframleiðsla þeirra hefur ekki viðtakendur lengur. Hugsanlega eitthvað sem minnir á öxulveldin í gamla daga. Of mikið stál fer gjarnan í hergögn. Kínverjar voru að sjósetja sitt fyrsta alvöru flugmóðurskip. Þeir eru að byggja flugvelli með því að byggja utan á kóralrif. Svipað og við gætum gætum gert við Kolbeinsey í minni skala kannski. Þar sem áður voru hafdjúpin ein eru nú risaflugbrautir sem ógna Ástralíu og öllu Suður-Kínahafi. Hvað gerist ef bakslag verður í heimsviðskiptunum geta menn rétt ímyndað sér. Allur þessi mannfjöldi lýtur einræðisstjórn sem þarf engan að spyrja og engum að standa reikningsskil hugsana sinna. Hefur heimurinn ekki upplifað svipað áður?

Við Íslendingar getum aldrei botnað í kínverskum hugsunarhætti þannig að við getum spáð í hvað þeirra muni gera næst. Þeir eru þó ekki lengra frá okkur en sem nemur vegalengdinni til Grímsstaða ef þeim sýnist svo. Þeir voru að kaupa lönd á stærð við Ísland í Ameríku. Þeir eru ekki eins og við heimskingjarnir sem reikna allt í afkastavöxtum og arðsemi banka. Þeir sjá langt fram í tímann meðan við erum með nefið milli fótanna á okkur.

Það er ástæða til að fylgjast með atburðum á Kínahafi. Þeir munu koma okkur við þegar útþensla Kínverja heldur áfram. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922