og heimskan og falsfréttirnar í vinstri sinnuðu fréttamiðlunum er yfirgengilegur:
"Góður gangur í kjaraviðræðunum" (Opinberir starfsmenn eru alveg eftir að vísu.)Gott útspil ríkisstjórnarinnar en mikið ber í milli. Verkföll framundan að visu.
Raunveruleikinn birtist öðruvísi:
Kollegi Bjarni Jónsson skrifar svo:
"
"Helmut Kohl, þáverandi kanzlari Vestur-Þýzkalands, fórnaði DEM fyrir samþykki Mitterands, þáverandi forseta Frakklands, á endursameiningu Þýzkalands. "Die Bundesbank" var á móti, en "Bundestag", Sambandsþingið, samþykkti.
Frakkar eiga í mesta basli við að standast Maastricht-skilmálana, og halli ríkissjóðs miðstýrðasta ríkis Evrópu mun sennilega fara yfir mörkin, 3 % af VLF, á árinu 2019. Frakkar eru nú sjálfir komnir í þá spennitreyju, sem þeir ætluðu að færa Þjóðverja í.
Það hefur verið lítill hagvöxtur í ESB eftir hrun peningamarkaðanna 2007-2008. Sum ríki evrusvæðisins fóru hræðilega illa út úr þessu hruni vegna viðbragða framkvæmdastjórnar ESB o.fl., sem tóku meira mið af hagsmunum þeirra, sem hafa efni á að hanga í Berlaymont og reka þar áróður fyrir sínum hagsmunum, en almennings í evru-löndunum. Þetta er skýringin á vaxandi lýðhylli þjóðræknistefnu í Evrópu og vantrú á bákninu, afætunum, sem unga út reglugerðum og tilskipunum, í Brüssel.
Hagur almennings á Ítalíu hefur ekkert skánað síðan árið 1999. Þar hefur ríkt stöðnun, og opinberar skuldir aukizt eftir upptöku evrunnar. Núverandi ríkisstjórn Ítalíu ætlaði að örva hagkerfið með ríkisútgjöldum, sem hleypa myndi ríkissjóðshallanum yfir 3 % af VLF, en var gerð afturreka með fjárlagafrumvarpið af búrókrötunum í Brüssel.
Spánn og Írland njóta nú hagvaxtar eftir kerfisbreytingar hjá sér, en máttu þola langt stöðnunartímabil vegna gríðarlegrar skuldayfirtöku ríkisins frá bankakerfinu að kröfu Framkvæmdastjórnarinnar.
Atvinnuleysi ungs fólks á Spáni er nú 35 %, sem vitnar um skelfilegt þjóðfélagsástand. Launahækkanir hafa nánast engar verið á evrusvæðinu frá 2008. Hvers vegna krefjast verkalýðsfélögin þar ekki launahækkana ? Það ætti að verða íslenzkum verkalýðsleiðtogum verðugt umhugsunarefni.
Írland nýtur sérstöðu, því að bandarísk fyrirtæki hafa fjárfest gríðarlega þar, enda njóta þau skattalegs hagræðis á Írlandi, þar sem er aðeins 12 % tekjuskattur á fyrirtæki. Þessi fyrirtæki öðlast auðvitað tollfrjálst aðgengi að EES-markaðinum, hvað sem tollastríði Bandaríkjaforseta við ESB líður.
Verstu mistök ESB í peningamálum voru 2010, er Framkvæmdastjórnin neitaði að viðurkenna, að gríska ríkið gæti aldrei greitt allar skuldir sínar.
Þar opinberaðist hið vanheilaga samband búrókratanna í Brüssel og fjármálavafstrara Evrópu. Í stað þess að afskrifa a.m.k. helming skulda gríska ríkisins, þá voru þær fluttar frá þýzkum og frönskum bönkum o.fl. og til opinberra sjóða.
Þar með voru skattborgarar lánveitendaríkjanna gerðir ábyrgir fyrir skuldum eins skuldararíkjanna. Þetta er eitur í beinum sparnaðarsinnaðra skattborgara og mun óhjákvæmilega leiða til gliðnunar í evrusamstarfinu, hvað sem líður Aachen-samningi forseta Frakklands og kanzlara Þýzkalands. Ríki Karlamagnúsar sundraðist fljótt, og aðeins kirkjan sameinaði Evrópu um tíma, en hún sundraðist líka. Þjóðverjar þoldu ekki við undir oki Rómar.
Þegar alvarleg fjármálakreppa ríður yfir næst, mun reyna mjög á greiðsluþol skuldugu ríkjanna vegna vaxtahækkana, sem alltaf verða gagnvart illa stæðum ríkjum við slíkar aðstæður.
Hvorki evrubankinn né lánadrottnarnir munu hafa bolmagn til að hindra skuldugu ríkin á evru-svæðinu í að fara á hliðina. Evran verður auðvitað ekki söm eftir. Myntsvæðum Evrópu gæti fjölgað. Óvíst er, hvað um Evrópusambandið verður í kjölfarið. Munu Bretar enn einu sinni standa eftir með pálmann í höndunum ?"
Aldrei geta kommatittirnir og plattenslagararnir skilið það að það er ekki hægt að gera neitt úr engu. Það verkefni er því óleysanlegt að lyfta þeim lægst launuðu sérstaklega án verðbólgu.
BHM og BSRB eru alveg eftir að koma með kröfurnar um að menntun sé metin til launa þegar búið er að gera allt fyrir alla í VR og Eflingu. Þá leysir verðbólgan dæmið fyrir ykkur sem gerir það að verkum að endarnir eru verri fyrir öreigana í lok þess tíma sem það tók að vinna upp tapið af verkfallinu. Og við skulum gera ráð fyrir 5 vikum án launa sem lágmarki.
Hálfrar aldar reynsla frá því að Gvendur Jaki heimtaði hundraðþúsund króna lágmarkslaun og byggja mislæg gatnamót á Kringlumýrarbraut.Alveg óþarfi að tala um um helvítis frjálshyggjuna í því sambandi.
Það er ekki verkalýðsbaráttan heldur skortur á henni sem hefur fært launþegum fordæmalausa kaupmáttaraukningu það sem nú er að ganga sitt skeið á enda. Það var vinnan og framleiðslan sem gerði þetta.
Framundan er því svartnættið eitt en ekki árangur í verkalýðsmálum.
Frjálshyggjan er ekki vandamálið heldur heimska kommatittanna sem eru í forystu fyrir "kjaraviðræðunum".
"Því verkalýðshreyfingin vill byggja upp, ekki rústa." segir Ómar Geirsson með kveðju að austan.
Hátimbruð heimska birtist í svona setningu um þessar mundir ef reynslan er skoðuð.
Sjálfsmorðsundirbúningurinn gengur því alveg prýðilega.