Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Oxfam

$
0
0

Frétt Guar­di­an

"Auðæfi þeirra 26 rík­ustu í heim­in­um eru svipuð því sem eign­ir 50% þeirra fá­tæk­ustu í heim­in­um, seg­ir í nýrri skýrslu bresku hjálp­ar­sam­tak­anna Oxfam. Sam­tök­in hvetja til þess að lagður verði á 1% auðlegðarskatt­ur og með því væri hægt að tryggja nægj­an­legt fé fyr­ir skóla­göngu allra barna sem ekki ganga í skóla í heim­in­um. Þetta kem­ur fram í frétt Guar­di­an. 

Þar seg­ir að eign­ir 26 ein­stak­linga sam­svari eign­um 3,8 millj­arða jarðarbúa. Oxfam gef­ur skýrsl­una út ár hvert áður en heimsviðskiptaráðstefn­an hefst í Dav­os í Sviss. Í skýrsl­unni nú kem­ur fram að þeir rík­ustu hafi orðið rík­ari og þeir fá­tæku fá­tæk­ari.

Með því að leggja á 1% auðlegðarskatt væri hægt að safna 418 millj­örðum Banda­ríkja­dala sem næg­ir til þess að tryggja skóla­göngu allra barna í heim­in­um og heilsu­gæslu. Það gæti bjargað þrem­ur millj­ón­um frá dauða."

Ekkert væri vitlausara en að dreifa þessum eignum á jarðarbúa. Aðeins samþjöppuð skynsemi þessarra ríku gerir það að verkum að jarðarbúar njóta framfara og hagvaxtar.Ekkert yrði úr þeim ef tómir vitleysingar sem almenningur er upp til hópa fengju of mikið til að sukka með.

Stjórnmálasviptingr eru oft í raun góðar því þær gefa spilin upp á nýtt. New Deal sagði Rossewelt.

Það var gefin stjórnmálaleg skipun um  að brjóta upp ESSO Rockefellers. Það var gert en innan  fárra ára var hvert brotið orðið stærra en það upphaflega stóra. Þannig virkar kapítalisminn, fyrirtækin vaxa og blómgast.

Frjálshyggjan segir að þau eigi að fá að vaxa og líka það að best sé að sem flestir taki þátt í kapphlaupinu um auð og völd.

Hoover byggði stífluna og hún leiddi af sér vöxt í iðnaði.Roosewelt og Hitler byggðu þjóðvegina sem nýttust fólkinu og iðnaðnum. Alveg eins og Afl fyrir Austurland gerði öllum Austfirðingum gott og er því hvergi nærri lokið.Nýju hátækniverksmiðjurnar á Austfjörðum  Eskja osfrv.  eru afleiðingar almennra vaxtarskilyrða sem þá mynduðust.

Eitt sinn voru Síldarverksmiðjur Ríkisins helsta stóriðjan. Sveinn Ben lagði þá grunninn að veldi Engeyinganna sem enn varir. En hann var samt bara ríkisstarfsmaður sem stórefnaðist.Varð ríkur á þeirri aðstöðu í pilsfaldakapítalismanum eða þjóðarrekstri að sovéskum stíl. 

Alli ríki og ýmsir aðrir stórútgerðarmenn eins og Einar Guðfinnsson  voru öðruvísi og hófust af sjálfum sér. Langafabróðir minn Otto Wathne sagði alltaf:"Det kommer nu an på silla."Hann vissi að að það þurfti að afla áður en menn færu að eyða og þannig hugsuðu gömlu kallarnir.

Þetta sem vinstra liðið kallar núna Samfélagssátt er aldrei mikið  annað en viðleitni til að draga alla, sem þeir kalla þá lægst launuðu, niður á lægsta plan þar sem allir hafa það jafnskítt. Kapítalisminn hefur hinsvegar séð um að lyfta planinu þannig að þeir verst settu í dag  hafa það núna miklu betra en þeir höfðu það áður. 

Tæknin og þekkingin og fjármagnið skapa velsældina.Allir mega ekki hafa jafnan aðgang að fjármagni og lágum vöxtum, þá fer allt í vitleysu. Það eru bara þeir sem hafa eitthvað vit í kollinum og framkvæmdavilja sem er treystandi fyrir lánsfé. Þess vegna eru bankastjórar en ekki sjálfsafgreiðslukassar fyrir lán  í bönkunum.

Oxfam er á villigötum ef það heldur að almennt heimskir og fátækir jarðarbúar geti gert eitthvað við meiri peninga en sem duga fyrir nauðþurftum og gleymir því að 100x 1 % eru 100%.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922