Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Klukkuhringlunaróskir

$
0
0

gjósa upp með reglulegu millibili. Áberandi í þeim hópi er fólk sem hefur ekki annað þarfara að gera en vera með sérvisku um smáatriði sem litlu máli skipta.

Ég minnist ekki annars en óþæginda af klukkubreytingum úr mínu nokkuð langa lífi. Misst af viðburðum og þurft að reyna á mig til að varast snörurnar. Ég hef verið títt í Ameríku þegar breytt er í sumartíma og aldrei haft nema óþægindi af.Sama var í Evrópu á haustin þegar breytt var í vetrartíma.

Á vef Ágústar frænda míns H. Bjarnason verkfræðings stendur þetta:

"



"Í stuttu máli þá mun seinkun klukkunnar á Íslandi ekki fjölga birtustundum sem falla á venjulegan vökutíma, heldur fækka þeim...". 

Þannig svara þeir  Dr. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur og Dr. Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur, sem þekkja þessi mál best Íslendinga, spurningunni á Vísindavefnum.


 Á Vísindavefnum stendur meðal annars í svari Þorsteins og Gunnlaugs:

"...Ef klukkunni á Íslandi yrði seinkað um klukkustund frá því sem nú er myndi fjölga talsvert þeim stundum þegar dimmt er á vökutíma. Áhrifin yrðu þau að í Reykjavík myndi dimmum stundum á vökutíma, miðað við að sá tími sé frá kl. 7 á morgnana til kl. 23 á kvöldin, fjölga um 131 stund á ári. Ef miðað er við að vökutími sé kl. 8-24 yrði fjölgun dimmra stunda á vökutíma hins vegar 190 stundir á ári.

Seinkun klukkunnar hefði þau áhrif að bjartara yrði á morgnana þegar börn fara í skóla og menn til vinnu. Þetta er tvímælalaust sterkasta röksemd þeirra sem vilja fara þessa leið. Á hinn bóginn eru bjartari morgnar keyptir því verði að fyrr dimmir síðdegis þegar umferð er meiri og börn á leið úr skóla. Menn getur greint á um það hvort þeir kjósi fremur bjartari morgna eða bjartara síðdegi. En umferðarþunginn bendir til þess að menn nýti almennt síðdegið fremur en morgnana til að sinna erindum sínum. Það virðist gilda að sumri ekki síður en vetri og stjórnast því ekki af birtunni einni saman..."

Smellið á krækjuna til að sjá alla greinina á Vísindavefnum:   Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fengið þannig fleiri birtustundir yfir daginn?

 
--- --- ---

Að lokum:

Er fækkun birtustunda um 130 til 190 klukkustundir á ári æskileg og eftirsóknarverð? Vafalítið kemur þessi staðreynd mörgum á óvart, en það er óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að seinka klukkunni.

Varðandi stillingu líkamsklukkunnar er vert að hafa í huga, að við jafndægur á vori og hausti breytist tíminn við sólris og sólarlag um tæpan hálftíma á einni viku, eða lengd sólarhringsins um næstum klukkustund. Líkamsklukkan ætti þá fullt í fangi með að stilla sig af og elta dagsbirtuna, og í raun mjög ólíklegt að hún gæti það. 

Áhrif á svefntíma barna og unglinga gætu verið einhver fyrst eftir að klukkunni er seinkað, en það er næsta víst að svefntíminn færi í sama horf eftir aðeins fáeina sólarhringa, því á okkar norðlægu slóðum er sólarklukkan gersamlega ófær um að stilla líkamsklukkuna, eins og ljóst má vera.

Mun árangursríkara er að breyta skólatíma þannig að kennsla hefjist ekki fyrr en klukkan 9, í stað klukkan 8. Áhrifin af því yrðu varanleg, auk þess sem það hefði jákvæð áhrif á umferðaröngþveiti sem mest er um klukkan 8 á höfuðborgarsvæðinu.

Þegar sá er þessar línur ritar var í menntaskóla var hringlað með klukkuna vor og haust og man ég ekki til þess að það hafi verið neitt betra fyrir okkur skólanemendur. Ég var í háskóla á Íslandi 1968 þegar hætt var að breyta klukkunni og fann ég nákvæmlega ekkert fyrir því, fyrir utan hve notalegt var að losna við ruglið á svefntíma skömmu eftir að klukkunni var breytt vor og haust.

Ekki má gleyma því hve góð áhrif það hefur á heilsuna að koma heim úr vinnu í vel björtu að sumri til og geta notið dagsbirtunnar og sólar mun lengur. Hverjir vilja fórna þeim munaði?"

 

Ég tek undir allt sem þarna er sagt.

Ekkert minna en Þjóðaratkvæðagreiðsla held ég að þurfi að koma til þannig að úr þessu verði skorið af viti. En að sérvitringar af vinstri vængnum fái ekki völdin eins og greinilega er stefnt að núna með Samráðsgátt stjórnvalda. En þar á að safna saman nokkrum jákvæðum umsögnum og keyra svo málið é gegn hvað sem tautar.

Ólíklegasta fólk stígur fram og gefur yfirlýsingar um að Íslendingar muni breyta háttatíma sínum og svefnvenjum bara ef látið er undan bullinu. Gersamlega ósannaðar tilgátur eru hafðar uppi sem stórisannleikur sem þetta fólk hefur auðvitað ekki minnstu hugmynd um.

Reynslan frá 1968 er óljúgfróðust. Það  hefur allt gengið vel á klukkuhringlsins.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922