af skattfé var sett í áramótakaupið hjá Jóni Gnarr.
Skemmti það mér fyrir þá upphæð?
Hvað skilur það eftir sig? Kommatittirnir allir eru á einu máli að lofsyngja snilldina sem í því fólst. Ég kom ekki auga á hana.
Ég hló svolítið að leiknum hjá þeim sem lék Bergþór, hann var svo ári góður.
Krafa Harðar Torfa um að fá að gefa blóð gegn einfaldri yfirlýsingu um undangengna kynlífshegðun(sem gagnkyn-eða tvíkynhneigðir þurfa ekki að að gefa) er spurning um rétt blóðþega til að neita blóði úr kommúnista eða blámanni. Er blóð blóð eða eitthvað annað?
Ég var sjálfur skíthræddur þegar læknir minn vildi endilega gefa mér blóð. Var þetta blóð úr Framsóknarmanni eða einhverjum ámóta? Hvaða upplýsingum á blóðþegi rétt á? Einhversstaðar las ég að sjór væri eiginlega jafngóður og blóð til inngjafar.
En fundurinn í Sjálfstæðisflokknum var auðvitað eins og við var að búast af þessum Jóni Gnarr sem mér hefur þótt frekar misfyndinn um dagana. En óneitanlega fannst mér hann fyndinn meðan hann var titlaður Borgarstjóri meðan Dagur rann.
En í heildina fékk ég ekki hlátursverki eins og þegar Flosi hneggjaði hér í gamla daga.
Ég þarf sjálfsagt að sjá þetta þrim sinnum ef ég á að sjá snilldina í þessu og sættast við kostnaðinn 34 milljónir.