Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Á ég að trúa því?

$
0
0

að nú sé Björn Leví farinn að leiðbeina mér í pólitík?

Hann segir í Mogga að nú ætli ríkisstjórnin að leggja veggjöld á allt í kring um Reykjavík fyrir miklu meiri peninga en eigi að nota í uppbyggingu vegakerfisins. Sem sagt að hefja hefðbundinn stuld á vegafé strax eins og alltaf hefur verið gert?  Og því til undirbúnings sé samgönguáætlun frestað fram á næsta ár?

Ég sem var bláeygður og trúði Jóni Gunnarssyni að þetta væri einfalt. Menn fengju framkvæmdir strax ef þeir borguðu veggjöld sem rynnu beint til verkefnisins. Annars fengju þeir einfaldlega ekki framkvæmdina strax.

Nei, þetta verður ekki svona segir  Björn Leví. Hann  segir að þeir ætli að svíkja þetta og nota veggjöldin einfaldlega til að hækka skatta á almenningi.

Virðist ekki Furstinn hans Machiavellis ráða ríkjum á Alþingi og blekkja bláeygða heimskingja eins og mig þegar honum sýnist svo?

Verð ég ekki bara að hætta að trúa því að eitthvað heiðarlegt geti nokkurn tímann komið frá Alþingi? 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922