þjakar marga sem telja að stjórnmálamenn hafi til langs tíma stolið eyrnamerktum tekjustofnum til umferðarmála í önnur gæluverkefni sín,
Nafni minn að sunnan, Halldór Egill Guðnason, alþjóðleg sjóhetja suður í höfum, sendir mér iðulega skarplegar athugasemdir sínar. Hann segir að skila eigi því til umferðarmála sem þegar sé búið að rukka inn áður en við leggjum á ný gjöld.
Ég svaraði honum nú síðast svona:
"Nafni minn að sunnan
ég skil reiði þína fyrir gamlar misgerðir. Og ég er auðvitað hræddur við pólitíkusana og glæpaeðli þeirra til stuldar á eyrnamerktum tekjustofnum til bráðabirgða eins og þungaskattinum til áratuga í stað boðaðs árs. En hvað eigum við að gera?
Eigum við að byrja strax á að grafa ný Hvalfjarðargöng og rukka eða eigum við ekki að gera það? Hvað leggurðu til?
Eigum við að leggja Autobahn milli Hveragerðis og Selfoss og rukka veggjald eða eigum við bara að gera ekki neitt? Eigum við að rukka í Héðinsfjarðargöng eða ekki?"
Margt fleira má tína til. En eigum við endalaust bara að hata og ger ekki neitt eða eð eigum við að reyna að halda áfram og gera eitthvað nýtt eins og hann Jón Gunnarsson er að leggja til? Verkefnin eru allstaðar.
En reiði nafna míns og margra annarra er skiljanleg en hún leiðir okkur ekki til neins.