til viðbótar fjörtíuþúsundunum hans AlGore eru nú samankomin í Póllandi til að fimbulfamba um loftlagskenningarnar.
Svo segir í Mogga:
"Á hinu pólitíska sviði hafi þá stjórnmálaleiðtogar í Rússlandi, Tyrklandi, Ástralíu og Brasilíu nefnt fordæmi Trump sem ástæðu fyrir að takmarka aðgerðir sínar gegn loftlagsbreytingum. Þá hafa Rússland og Tyrkland sagst ætla ekki að staðfesta samkomulagið.
Nýkjörin forseti Brasilíu, Jair Bolsonaro, hefur einnig sent frá sér blendin skilaboð varðandi loftslagsbreytingar og nýlega útilokaði stjórn hans að næsta loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna verði haldin í Brasilíu.
Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, tók málið upp á loftslagsráðstefnunni og sagði ljóst að með auknum framgangi poppúlískra ríkisstjórna væru ríki heims að verða klofnari í afstöðu sinni til loftslagsbreytinga.
„Við sjáum að traust milli almannaskoðana og alþjóðastofnana hefur látið á sjá og að mínu mati hefur þetta leitt til skorts á nauðsynlegum pólitískum vilja,“ sagði Guterres."
Eftir þessum mýrarljósum hlaupum við Íslendingar og tökum brauðið frá börnunum og gamalmennunum til að þjónka dellunni þó að við Íslendingar höfum nær engin áhrif á heildaútblásturinn. Hvað þá að við séum að styrkja þá sem taka maísinn frá hinum sveltandi íbúum Afríku til að framleiða Etanól til að gera bensínið okkar dýrara fyrir þá fátæku.
200 fífl til viðbótar við hin fjörtíuþúsund.