er kynntur sem raunveruleg persóna í DV og leiddur fram sem raunverulegur heimildamaður að Klaustursnjósnunum. Fyrir manni rifjast upp ummæli Trump um falsfréttir
Það er mikil tilætlunarsemi að ætlast til þess að menn taki þessa frásögn DV trúanlega af þessum Marvin. Hann gæti alveg eins verið tilbúningur eða gervimaður eins og Mökkurkálfi. Engin sönnun er fyrir því hver hann er eða hvort hann tengist DV eða Stundinni á einhvern hátt. Sem væri fróðlegt að vita.
Lesandinn er engu nær um það hvort hann Marvin er tilbúningur eða á við rök að styðjast.Svo furðuleg er sagan í DV nema að upptakan er líklega raunveruleg úr margendurhlöðnum síma á rafmagni Klaustursins væntanlega. Og mikið siðferðiströll má þessi Marvin vera ef menn hugsa um að að hann þekkir ekki fyllibytturnar nema eina við næsta borð.
Svona fréttamennsku mega þeir trúa sem treysta sér til þess.Þennan Marvin Mökkurkálfa þekki ég allavega ekki.