Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Reykinn leggur frá

$
0
0

Klausturskandalnum.

Maður veltir fyrir sér hvort Stundin standi á bak við skipulagðar persónunjósnir og hvort þeir séu studdir af pólitískum öflum.Sem eru líklega ekki á vegum Sjálfstæðisflokksins né Framsóknarflokksins.

Inga Sæland staðfestir þá mynd sem menn hafa af henni að hún sé fyrst og fremst tilfinningavera en stjórnist ekki endilega  af rökhyggju. Mörgum finnst hún hafa beinlínis skælt sig inn á Alþingi í stjórnmálaumræðum fyrir kosningarnar fremur en að hafa sannfært kjósendur með málflutningi.

Þegar hún rekur dr. Ólaf Ísleifsson úr þingflokknum fyrir að hafa yfirgefið fylleríið á Klaustrinu og ekki sagt neitt óviðurkvæmilegt þá sýnist manni það ekki skynsamleg stjórnmálaleg ákvörðun fyrir Flokk Fólksins, Ekki hef ég heldur heyrt eitthvað rosalegt haft eftir sýslumanninum Karli Gauta  sem réttlætir slíkan brottrekstur. Afleiðingin er sú að mest af vitinu er farið úr þessum flokki sem á bara vælukjóatalið í formanninum eftir, sem bara endurtekur síg í sífellu og fólk nennir varla að hlusta á lengur.

Þessir þingmenn geta ekki myndað nýjan þingflokk og virðast þá eiga skammt ófarið yfir til Miðflokksins fremur en að sitja sem óháðir.

Öðru máli gegnir um Bergþór Ólafsson. Hann hefur afhjúpað sig sem frekar fágæta persónu, sem er óvíða í umferð meðal siðmenntaðra manna það ég þekki. Talsmáti eins og hann notar er ekki notaður meðal fólks sem ég umgengst gjarnan. Gunnar Bragi sagði líka margt sem ekki er sæmandi séntilmönnum, hvorki fullum né ófullum.

Sigmundur Davíð, sem njósnari Stundarinnar  segir svo ósannfærandi að hann sé sá eini sem hann hafi þekkt í sjón og þess vegna hafi hann teipað selskapið í 4 klukkutíma, sleppur ef til vill frá þessu, Nema að því leyti að hafa sýnt dómgreindarleysi með því að hafa setið til borðs með þessum slordónum og fíflum sem hæst fóru.

Svo hver er niðurstaðan?

Almennt séð er það ávallt happ fyrir fólkið þegar stjórnmálamanni er velt af stalli með einhverjum hætti. Hann er þá bara yfirleitt að hljóta makleg málagjöld fyrir blekkingar sínar varðandi eigin karakter.

 

Varanleg veiking Flokks Fólksins er staðreynd og mátti hún alveg verða að skaðlausu. Hugsanleg styrking Miðflokksins nema ef dr. Ólafur og jafnvel Karl Gauti  færu frekar yfir til Bjarna en Sigmundar. En það er ekki alls fyrirséð hvort Bjarni vilji þá þar sem orðsporið orkar tvímælis að minnsta kosti enn sem komið er.

Píratar hafa sjáanlega ekki grætt neitt á þessu. Þannig verður hugsanlega heildarniðurstaðan, þegar reykinn leggur frá,sú að  Alþingi styrkist frekar en veikist,sem mörgum hefur fundist löngu tímabært.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922