í byrjun desember. Þá á að prakka langhundi frá SÞ inn á okkur til að auðvelda efnahagsflóttamönnum för inn á sósíal vesturlanda.
GLOBAL COMPACT FOR SAFE, ORDERLY AND REGULAR MIGRATION INTERGOVERNMENTALLY NEGOTIATED AND AGREED OUTCOME 13 July 2018
We, the Heads of State and Government and High Representatives, meeting in Morocco on 10 and 11 December 2018, reaffirming the New York Declaration for Refugees and Migrants and determined to make an important contribution to enhanced cooperation on international migration in all its dimensions, have adopted this Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration:
DF ætlar ekki að samþykkja fjárlögin í Danmörku nema stjórnin hætti við að skrifa undir þennan langhund í Marokkó upp á 34 síður. Þeir halda því fram að þetta muni aðeins stórauka vandann sem sækir að vegna efnahagsflóttamanna sem streyma til þróaðra ríkja.Það væri æskilegt að ríkisstjórn okkar færði rök fyrir þeim kostum sem hún sér við þetta plagg áður en hún skrifar undir.
Við Íslendingar ættum þegar að vera búnir að fá smjörþefinn af því að taka við ómenntuðu fólki frá þriðja heiminum. Þetta fólk lærir ekki málið okkar, vinnur helst ekki því það skilur ekki út á hvað vinna gengur og er þjóðinni einungis til byrði. Sækir svo ættingja sína hingað til lands sem eru af sama sauðahúsi og auka enn á vandann.
Við eigum að fara mun sparlegar en við gerum með íslenskt ríkisfang og vanda val okkar á þeim sem við ætlum að taka við ef ekki verður hjá því komist. Við eigum ekki að láta rétta okkur kvótaflóttamenn nema þá að velja þá sérstaklega fyrirfram.
Það þarf að afstýra því að ríkisstjórn okkar missi sig í Marokkó og skrifi undir þetta plagg sem verður okkur aðeins til vandræða.