er þessi:
CO2 hefur ekki verið lægra í andrúmslofti jarðar í 800 milljón ár.
Ýmsir loftslagfræðingar hafa veri að reyna að draga þetta línurit í efa og segja að sé teygt á skalanum á endanum komi sannleikir IPPC í ljós. Þetta er alrangt því að ppm af CO2 er lágt.
Það sést glöggt á næstu mynd:
Þetta sýnir að allar niðurstöður fjörtíuþúsund fífla AlGore í París eru byggðar á bulli sem er að stórskaða efnahag Íslands og fleiri.
Nú blæs RÚV í herlúðra í dag og fimbulfambar um nýja skýrslu 300 bandarískra vísindamanna sem breytu öllu fyrir Bandaríkin.Þetta er dæmigerð falsfrétt sem breytir engu.
Nature er að enda við að birta grein sem sýnir að hitnun hafanna hefur aukið við magn gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu en ekki öfugt. Og af hverju hitnar á jörðinni? Hver leggur til hitann. Hver er það sem getur breytt hitastigi jarðar? getur enginn horft til sólar?
Og svo stíga milljónir tonna af allskyns gösum upp frá jöklunum okkar og hverasvæðum og eldfjöllum. Og ráðamenn okkar eru tilbúnir að senda Evrópusambandinu tékka fyrir þessu öllu sem við borgum með sköttunum.
Að hugsa sér að við skulum kjósa þetta fólk með opnum augum þegar sannleikurinn um CO2, sem gerir jörðina græna, blasir við.