hefur ekki komið fram ennþá. En hneykslunaröldur hafa risið jafnháar Esjunni að manni finnst.
Þessi braggi sem Flugmálastjórn notaði á sínum tíma sem samkomusal fyrir smærri partí er orðinn mönnum gríðarlegt áhugamál. það er búið að gera hann bara fallegan með fögrum stráum utanhúss. Hvað er eiginlega að þessu öllu? Hvað á hann að kosta að réttu?
Er bragginn orðinn allt of dýr? Gamlar sögulegar stríðsminjar? Hvað mætti hann kosta? Væri helmingur ásættanlegur og undir sársaukamörkum.
Eða skiptir talan kannski engu máli ef hægt er að kenna einhverjum ákveðnum um eftirlitsleysi. Nú þarf að endurskoða allan byggingarferilinn að manni skilst.
Heldur einhver að það muni ekki kosta neitt? Ég giska á milljónatugi til viðbótar sem kannski væru betur komnir í að klára klósettið svo hægt sé að leigja húsið út? Ef bara ekki á að afhenda það til brottrekstrarfólksins í H.R. ókeypis?
Svo geta menn talað um Orkuveituhús Alfreðs Þorsteinssonar í framhaldi. Það þarf að skipta um útveggi þar. Hvað skyldi það nú kosta? Og hvað skyldi nú eftirlitið og endurskoðun á eftirlitinu með því koma til með að kosta?
Hver veit hvað er rétt verð á bragga og Orkuveituveggjum?