samt segir forysta Sjálfstæðisflokksins míns.Svo segir í Mogga:
"Þannig hyggst Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, leggja fram frumvarp um breytingar á raforkulögum nr. 65/â2003 og lögum nr. 87/â2003 um Orkustofnun í febrúar. „Frumvarpið felur í sér innleiðingu á þriðju raforkutilskipun ESB að því er varðar sjálfstæði raforkueftirlits Orkustofnunar.“
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hyggst í sama mánuði leggja fram þingsályktunartillögu um ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á EES-samningnum vegna innleiðingar á þriðja orkupakkanum. Meðal annars um að koma á fót samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði sem nefnd hefur verið ACER."
"Þegar kemur að tekjum er andstaðan við slíka færslu á valdi úr landi mest á meðal þeirra sem eru með 800-999 þúsund krónur í mánaðarlaun (88,5% andvíg og 3,5% hlynnt) og næst mest hjá þeim sem eru með 400-549 þúsund krónur (84,4% hlynnt og 5,7% hlynnt)."
Svo sagði Styrmir Gunnarsson á fundi Sjálfstæðismanna:
"„Verði orkupakkinn samþykktur hefur Evrópusambandinu verið opnuð leið til þess að ná síðar yfirráðum yfir einni af þremur helstu auðlindum okkar Íslendinga. Þótt sagt sé á pappírunum að það sé í okkar eigin höndum að koma í veg fyrir það má strax greina suðið í undanhaldsmönnum sem munu hefjast handa við að sannfæra þjóðina að það sé hagkvæmt fyrir hana að láta þau yfirráð af hendi. Við munum hvernig þeir töluðu í Icesave, forystumenn í stjórnmálum, embættismenn og sérfræðingar. Manna á meðal heyrist setningin: Við eigum ekki annarra kosta völ og er höfð eftir hinum og þessum þingmönnum okkar. [...] Ef það er rétt að við eigum ekki annarra kosta völ er tímabært að stöðva við og endurskoða EES-samninginn allan,“ sagði Styrmir enn fremur og bætti við að landsfundir Sjálfstæðisflokksins, æðsta valdið í málefnum flokksins, hefðu aldrei samþykkt það að fullveldi Íslands væri fært í hendur Evrópusambandsins smátt og smátt í gegnum aðild landsins að EES-samningnum.
Styrmir rifjaði enn fremur upp ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins fyrr á þessu ári þar sem hafnað hefði verið frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins. Ef þingmenn flokksins ætluðu að leyfa sér að ganga gegn ályktuninni sagðist Styrmir vilja leggja fram þá tillögu að málið yrði borið undir atkvæði allra flokksbundinna sjálfstæðismanna. Það væri lýðræðisleg leið til að gera út um ágreiningsmál."
„Við hina ungu forystusveit Sjálfstæðisflokksins í dag langar mig að segja: Gætið að ykkur. Sá þráður í sálarlífi þessa flokks sem snýr að fullveldi og sjálfstæði er mjög sterkur. Flokkurinn virðist hafa misst varanlega um þriðjung af sínu fylgi. Hann má ekki við meiru. Sýnið þeirri sögu sem hér hefur verið rakin virðingu.“
Ég hélt satt að segja að forystan þyrði ekki að hjóla svona í okkur vesæla flokksmenn. En lengi skal manninn reyna og 3.orkupakkinn og áframhald innleiðinga tilskipana EES skal í okkur samkvæmt ísköldu mati forystunnar væntanlega sem veit alltaf betur en við.