sem allir séu að upplifa vegna auðvalds og kúgunar atvinnurekenda er leiðigjarnt. Það er eins og fólk haldi að Bjarni Ben hafi farið með tóma vitleysu í ágætri ræðu sinni á Alþingi. Það er ekki svo samkvæmt frétt í Mogga:
" Í fyrra voru heildarlaun fullvinnandi launamanna hér á landi að meðaltali 706 þúsund krónur á mánuði. Miðgildi heildarlauna var 618 þúsund krónur. Mismunur á upphæð meðallauna og miðgildis skýrist meðal annars af því að hæstu laun hækka meðaltalið talsvert.
Tæplega helmingur launamanna var með heildarlaun á bilinu 500 til 800 þúsund krónur. Þá voru tæplega 10% launamanna með heildarlaun undir 400 þúsundum króna og um 12% launamanna voru með heildarlaun yfir milljón krónur á mánuði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar sem birtar voru í morgun.
Heildarlaun á almennum vinnumarkaði voru að meðaltali 730 þúsund krónur á mánuði árið 2017 hjá fullvinnandi starfsmönnum. Heildarlaun ríkisstarfsmanna voru 774 þúsund krónur en 569 þúsund krónur hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Dreifing heildarlauna var ólík eftir launþegahópum, þannig voru 65% starfsmanna sveitarfélaga með heildarlaun undir 600 þúsundum króna á mánuði en það sama átti við um rúmlega 30% ríkisstarfsmanna og um 45% starfsmanna á almennum vinnumarkaði.
Hægt er að skoða nánar heildarlaun eftir starfsstéttum og því hvort unnið sé á almennum markaði, hjá ríkinu eða sveitarfélögum, á vefsíðu Hagstofunnar."
Það skiptir máli að fólk láti ekki afvegaleiða sig í æsingi kommanna sem vilja bara verkföll og ófrið af því það sé svo göfug stéttabarátta í anda Marx. Ófriður bitnar á öllum og alltaf mest á þeim verst settu eins og í Sýrlandi. Alltaf bera þeir minnst úr býtum þegar upp er staðið sem átti að laga mest með átökunum.
Taxtahækkanir umfram skynsemi eru fljótar að hverfa í verðbólgunni. Það er ekki skynsamlegt að stinga sér til sunds ef maður sér ekki til lands þó einhverjir hafi haldið því fram.
Bullið um slæmu kjörin má ekki ná yfirhöndinni yfir skynseminni.