Það má líklega þjálfa upp yfirsetukonur með skemmri skírn sem geta alveg gegnt móttöku barna. Margir slökkviliðsmenn og lögreglumenn hafa tekið á móti börnum í neyðartilvikum.
Ljósmæður eru bara búnar að prísa sig út af markaðnum með menntahroka og heimtufrekju.Fólk er búið að missa samúðina með fólki sem er ekki lengur í nauðvörn heldur beitir fantabrögðum í fjárpkógsstarfsemi.
Það skildist mér að minnsta kosti af grein Helga laxdal vélstjóra í Morgunblaðinu í dag.
Hvenær koma læknar? Sjúkraliðar? Geislafræðingar?Flugumferðarstjórar? Barnakennarar? Framhaldskólakennarar Ein allsherjar gíslataka virðist vera framundan sem allir eiga að styðja fyrir framan Alþingishúsið. Enda byrjaði skömmin þar með Kjararáðsfíflaríinu og algeru aðgerðaleysi þingmanna í framhaldi af því.Þeir bara sleikja út um og meina greinilega lítið með einhverju þusi sínu.
Hvar eru einkareknu fæðingarheimilin sem voru til hér áður fyrr? Heimilið hennar Hrafnfjörð í Kópavoginum var aldeilis frábært.Af hverju er fæðingarþjónusta ekki einkavædd?
Má ekki flytja inn tæilenskar yfirsetukonur eins og verkfræðinga? Ein ljósmóðir og 10 Tæjur geta kannski opnað fæðingarheimili?
Eru Ljósmæður ekki bara yfirmenntaðar fyrir þau störf sem þær vinna?