í gervi Helgu Þórisdóttur hjá Persónuvernd. Það hreinlega ískrar í henni af ánægju yfir þeim völdum sem hún er búin að ná yfir landsmönnum, löggjafanum og opinberum stofnunum.
"Helga segir leggur áherslu á að fólk verði að gera sér grein fyrir því að grunnskólar falla undir skilaskyldu á gögnum. „Þannig að allt sem er skráð í rafræn upplýsingakerfi hjá hefðbundnum grunnskólum, sem eru þá ekki einkaskólar, það er allt skilaskylt efni sem fylgir fólki á héraðs- eða þjóðskjalasöfnum um aldur og ævi.
Þess vegna skiptir gríðarlega miklu máli hvað er skráð og þess vegna erum við að reyna að herja á þetta skólasamfélag. Þannig er það í eðli sínu að aðgengi verður frjálsara eftir því sem árin líða.“
Og 1984 er aðeins liðið fyrir 30 árum.
Þetta gerist á vakt flokksins míns Sjálfstæðisflokksins sem ég trúði á í gamla daga að stæði vörð um einstaklingsfrelsið og atvinnufrelsið svo og sjálfstæði landsins. Hann hefur anað eftir mýrarljósum kratismans út í ófærur fullveldisframsalsins sem hann ætlaði að standa ævarandi vörð um. Er þessi flokkur minn lentur í tröllahöndum andstæðu alls þessa? Hvar á ég þá heima?
Stóri bróðir er mættur.