Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Eldhúsdagur

$
0
0

á Alþingi.

Páll Vilhjálmsson tók eftir þessu:

 landinu er góðæri með hagvexti, fullri atvinnu og björtum framtíðarhorfum. Viðreisn mómælir kröftuglega góðærinu, hafnar góðærinu.

Þorsteinn Víglundsson þingmaður Viðreisnar krefst þess að snúið verði baki við góðærinu og gerðar verði samfélagstilraunir að hætti vinstriflokka til að koma því fyrir kattarnef.

Hreinskilinn maður hann Þorsteinn og jákvætt af honum að koma til dyranna eins og hann er klæddur."

Ég tók eftir því að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sagði blákalt í ræðu sinni að Sigríður Á Andersen hefði logið að Alþingi varðandi dómaraskipan í Landsrétt?

Þar ekki að láta þennan þingmann standa við þessar fullyrðingar?

Á svona rangur málflutningur að sleppa óátalinn? Jafnvel þó að þessi alþekkti Pírataþingmaður eigi í hlut þá ættu einhver siðferðislágmörk að gilda þó að þingforseti hafi ekki gert athugasemd um orðfærið né fullyrðingarnar.

Eldhúsdagurinn var fyrir mér í raun minna spennandi en málfundirnir í Gaggó Aust voru í gamla daga þegar veröldin var yngri.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922