varð hér í dag þegar 19 ára unglingur Nikulás Cruz fer með AR-15 riffil i skólann sinn sem hann hafði verið rekinn úr fyrir einhverjar sakir og banar 17 manns.
Fólkið hér er harmi slegið og skelfingu lostið. Hvernig getur þetta gerst?
Hvað á að gera? Verður að setja upp vopnaleit við alla skóla?Hefur þetta ekki gerst einum og oft? Geðveikin gerir ekki endilega vart við sig fyrr en of seint.
Það er ekki hægt að skella skuldinni á vopnin sjálf. Það er hinn vondi hugur sem veldur því að vopni er beitt.
Verður ekki að reyna að tryggja það að vopn séu hvergi innan seilingar vitleysinga þar sem friðsamt fólk kemur saman. Skólabarn á ekki að þurfa að óttast að skólafélagi sé með vopn í skólatöskunni eins og Trump sagði efnislega í dag. Verður ekki Forsetinn að koma með tillögur?
Hvernig?
Það er verkefnið. Það verður að gera eitthvað í þessum ferlegu málum.