Það er allavega mjög dularfullt í hegðun hjá mér.
Blogg fer ekki inn nema með allskyns tilfæringum milli vafra, ég næ ekki sambandi lengi lengi, allt stendur fast. Sama hvort maður er staddur hér eða þar. Misvont er þetta, stundum í lagi, stundum ekki.
Það þýðir held ég ekki að vera að spyrja þá eða kvabba, þetta er jú frír ruslakassi sem Styrmir í Mogga lét mig held ég fá fyrir löngu svo ég væri helst ekki að skrifa í blaðið hans eða þannig upplifði ég það þá.
Nú ég hef svo sem dundað mér við þetta í dálítinn tíma og skemmt mér sjálfum aðallega við að æsa upp kommana og GGF. En þetta er orðið einhvern veginn erfiðara að vinna á þetta hreint tæknilega. Hefur einhver orðið var við þetta sama?
Er Moggabloggið kannski bara sprungið?