Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Búsæld í Barentshafi?

$
0
0

að því að Magnús Þór Hafsteinsson upplýsir.

Magnús segir:

"Norskir sjómenn og útgerðarmenn kvarta líka þessa dagana. Frá og með morgundeginum lækkar verð á þorski til sjómanna í Noregi um tuttugu prósent. 

 
Þetta er niðurstaða úr samningaviðræðum norska fisksölusamlagsins (Norges Råfisklag)og samtaka fiskkaupenda. Norska sjávarútvegsblaðið Kyst og Fjord greinir frá þessu í dag. Sjá hér. 
 
Formaður norska fiskimannasambandsins (Norges Fiskarlag) kvartar og kveinar sem von er. Það sem skilur þó norska sjómenn og útgerðarmenn frá þeim íslensku er að norskir geta líkast til brosað gegnum tárin.
 
Þorskkvótinn í Barentshafi verður nefnilega aukinn um fjórðung á næsta ári - heil 25 prósent eða um 250 þúsund tonn. Það er mokveiði í Barentshafi og því líklega ódýrara að stunda veiðar en nokkru sinni fyrr. Þar verða veidd minnst milljón tonn af þorski á næsta ári, mesta veiði í 40 ár. 
 
Það verður áhugavert að fylgjast með því hvort stóraukið framboð úr Barentshafi og þetta mikla verðfall á þorski í Noregi muni ekki einmitt setja þrýsting á fiskverð á Íslandi?
 
Og svo er heldur ekkert veiðigjald í Noregi..."
 
 
Hvað er það sem gerir það að verkum að menn veiða næstum eins og þá lystir í Barentshafi og fiskigengdin vex ár frá ári?
 
Getur verið að fæðuskortur vegna offjölgunar hjá þorskinum á Íslandsmiðum sé valdur að þessu? Hefur ekki Jón Kristjánsson verið að segja okkur að við veiðum of lítið og fiskurinn svelti þessvegna?  Vanveiði en ekki ofveiði hafi verið vandamálið á Íslandsmiðum?
 
Að minnsta kosti er skondið að veiðin í Barentshafi vex meðan ekkert gengur hjá okkur þrátt fyrir áratuga stranga veiðistýringu.
 
Aflinn hjá okkur er mestan part svona fjórðungur af jafnstöðuþorskafla fyrri tíma. Eru það kannski bara bankarnir sem eru að stýra veiðinni til að halda uppi veðandlögum sínum í kvótanum en ekki ofveiðin?  Af hverju má ekki ræða kenningar Jóns Kristjánssonar og svo kenningarnar um geymslu fiskjar í sjónum?
 
Búsældarfréttir úr Barentshafi vekja spurningar hjá leikmönnum.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922