er búið að velja handa okkur til innflutnings af einhverri sendinefnd sem er búin að fara fyrir okkur til Miðausturlanda, halda námsskeið fyrir hina handvöldu svo þeir geti undirbúið sig til þess atburðar að mæta okkur.
Við eigum ekki að undirbúa okkur undir neitt til að taka við þessu fólki. Nema að útvega þeim mannsæmandi húsnæði hér í skortinum og svo mat og peninga. Við höfum ekki fengið að vita hvaða fólk var valið og hvernig og svo sent til að velja þessa flóttamenn og eftir hvaða formúlum það var gert. Hversu mörg prósent þeirra völdu eru múslímar? Hversu mörg prósent eru menntuð til muns eða handa?
Það eru sögð talsverð líkindi til þess að kristið menntafólk aðlagist okkar samfélagi frekar en múslímar. Þeir eru sagðir klæðast öðruvísi, hafa aðra siði, stunda ekki ærumorð, barnagiftingar og sitthvað annað sem múslímar gera eftir sínum sjaríalögum sem þeir setja víst gjarnan ofar landslögum þar sem þeir setjast að.
Er ekki hægt að velja eitthvað af þessum 50 flóttamönnum eftir aðlögunarlíkindum og menntun?