berast í kvöld frá lögreglunni. Íslendingar stunda þessa bráðnauðsynlegu atvinnugrein með sóma. Vondu tíðindin eru hinsvegar þau að vændi er ólöglegt hérlendis að hluta. Það má ekki kaupa vændi þó það megi selja það sem þá útilokar auðvitað alla heiðarlega starfsemi þar sem einhverri skynsemi yrði við komið.
Þessar kellingar í Me-too sem eru síkvartandi yfir káfi og klípum gamalla graðra kalla fá færri árásir ef þetta er leyft. Það vita Þjóðverjar og fleiri þjóðir til dæmis og þar er vændi lögleg atvinnugrein sem það auðvitað á að vera sem sú elsta í heimi. Hér væri miklu meiri nauðsyn á að lögleiða vændi heldur en hassneyslu til dæmis og heilsufarslega og skattalega hollra fyrir samfélagið að gera svo.
Ef að athugasemdatröllin ætla að búa til einhvert kyntröll úr mér fyrir að skrifa um þetta þá bendi ég þeim á að kallar á níræðisaldri eru yfirleitt ekki í bráðri þörf fyrir svona starfsemi þó að þeir vilji beita skynsemi á tíðindi af þessum málaflokki sem af öðrum í þjóðfélaginu.