Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Píratar eru ekki stjórnmálaflokkur

$
0
0

á Alþingi heldur Pírataflokkur til viðbótar við 7 stjórnmálaflokka á Alþingi.

Í febrúar síðastliðnum fengu þingmenn kauphækkun. Þá hótaði Jón Þór Ólafsson Pírataþingmaður að kæra ákvörðun kjararáðs. Um efndir hefur enginn heyrt. En þessi þingmaður fékk þá 338.254 króna launahækkun á mánuði.

Þá sagði þingmaðurinn:

 »Ef þessir þrír aðilar bregðast allir þá mun ég kæra ákvörðun kjararáðs til dómstóla og hef nú þegar fengið til þess lögfræðing.«

 Þetta segir Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, í ofangreindri grein. Núna er eiginlega kominn tími til að hann leysi frá skjóðunni enda meira en tíu mánuður frá því að hann skrifaði þessi orð. Á þeim tíma og til loka þessa mánaðar hefur hann fengið samtals 3 milljónir króna aukreitis í laun, þökk sé þessu kjararáði.

Starf þingmanns er enginn orðaleikur eða innantómt tal. Ábyrgð þingmanna er mikil og þeir eru dæmdir af orðum og gerðum.

Jón Þór Ólafsson var stóryrtur í greininni sem hann þá skrifaði og því má spyrja: Hvað gerði hann við launahækkunina? Hvaða lögfræðing hefur hann ráðið til að hnekkja ákvörðun kjararáðs? Hverja hefur hann kært og fyrir hvaða stjórnvaldi?"

Fólkið sem kom inn af vinstra kantinum í fyrirlitningartísku Píratahugsjónarinnar hefur gersamlega gengið frá tiltrú manna á þessari Píratahreyfingu.

Morgunblaðið rifjaði  upp á sínum ´tima upp í Staksteinum endemis feril þessa Jóns Þórs á Alþingi, þar sem hann hefur bókstaflega orðið að viðundri fyrir slæping og hjásetur að hætti Pírata. Stökk af þingi til að fara að malbika. Bjó sem þingmaður án nauðsynja í  stúdentaíbúð til að spara? Þingmaður fyrir flokk sem krefst gagnsæis?

Það er beinlínis forsenda þess að hér sé hægt að mynda starfshæfa stjórn að Pírötum sé haldið utan við. Og með nokkru má segja að sama gildi um Samfylkinguna ef miða má við þær yfirlýsingar sem frá  formanni hennar koma um forgangsmál.

Bullið í Sunnu Ævarsdóttur á Sprengisandi tók svo steininn úr með það að sá þingmaður er ekki viðræðuhæfur um stjórnmál. Glórulaust vanþroska persónuhatur þessa þingbarns útilokar hana gersamlega frá vitrænni umræðu um stjórnmál,

Píratar eru greinilega ekki stjórnmálaflokkur í venjulegum skilningi sem nokkur getur byggt á til framtíðar.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922