Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Samræmd tryggingasvik?

$
0
0

koma fyrst í hugann þegar mað sér hvernig öll tryggingafélögin ætla að borga sér út arð af sem upprunninn í bótasjóðunum.

Ég hélt að bótasjóðirnir hefðu verið meðal annars myndaðir af sérstökum skattaafslætti tryggingafélaganna. Þá væru þessir sjóðir að hluta til almannaeign eftir minni bók.  

Gamlir tryggingamenn hafa sagt mér hvernig þeir umgengust bótasjóðinn í samræmi við þetta eins og hann væri heilög örk. Það voru ekki fyrr en ótíndir glæpamenn komist til valda  í einu helsta tryggingafélagi  landsmanna að þeim tókst að stela svona sjóð í heild sinni. Töpuðu auðvitað öllu því að þeir voru líka bara fjármálaeðjót sem ekkert bisnessvit höfðu eins og til dæmis Baugsmenn sem töpuðu líka á flest öllu sem þeir komu nálægt. 

Svo fengum Steingrím J. sem fjármálaráðherra sem í hutfalli við fjármálavit sitt lét bara ríkissjóð rétta hallann af eftir þjófana svo viðskiptavinir væru eitthvað tryggðir sem þeir voru alls ekki eftir bófana.  Svo gaf hann fyrirtækið eitthvað út í buskann þar sem það er núna ásamt öðrum svipuðum félögum. Og í fullkomnu samráði gefa þessi tryggingafélög lífeyrissjóðunum sem eiga þau núna að hluta puttann og ætla nú að hreinsa þau út í samráði sín á milli. 

Fyrir mér óupplýstum lítur þetta út sem ósvífin samráðsatlaga fjölda fjármálavíkinga í stjórnum tryggingafélaganna. Sem sum hver eiga vafasama fortíð, sbr.hvernig Brunabótafélagið var látið gufa upp inn í VÍS á sínum tíma og svo auðvitað öll sagan af Landsbanka-Sverri, VÍS og Finni Ingólfssyni "vaxtaflóni" og svo Óla í skipafélaginu Samskip sem stýrt er betur en nokkru sinni fyrr frá útibúinu á Kvíabryggju.  .

En að nokkur Íslendingur skipti um tryggingafélag vegna þessa þá er það VÍSt af og frá. Fjármálasiðferði eða neytendavitund landsmanna var nú ekki burðug fyrir þó þetta kæmi ekki til.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922