Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Enn bullar Þorvaldur

$
0
0

í Fréttablaðinu í dag.

Þar skrifar hann annars ágæta sagnfræðilega grein um kreppuárin í íslensku viðskiptalífi þegar ofurveldi Sambandsins og Framsóknarflokksins grúfði yfir vötnunum. Þar koma við sögu menn sem ég þekkti ágætlega og barðist með gegn leyfaveldinu og fyrir viðskiptafrelsinu sem varð um síðir ofan á. 

Þá var öllu fjármálalífi stjórnað með sérleyfum og ríkisbönkum undir pólitískri stjórn. Það var oft talað um helmingaskipti íhalds og Framsóknar á þessum takmörkuðu gæðum og sjálfsagt var eitthvað til í því. En skiptin voru ósanngjörn að því leyti að Sambandið var í eigu mikils minnihluta þjóðarinnar og byggðist á misvægi atkvæðanna.

En svo fer prófessor doktor Þorvaldur algerlega útaf sporinu og snýr greininni upp í einhlíða níð um Sjálfstæðisflokkinn. Og klykkir svo út með því að segja að nauðsynlegt sé að samþykkja stjórnarskrártillögur sínar til þess að bæta fyrir þessar misgerðir og skapa honum þóknanlegt samfélag.

Staðreyndin er sú að stjórnarskrártillögur Þorvaldar voru með öllu óbrúklegar vegna þversagna og bulls og hafnaði i þjóðin þeim eftirminnilega í þjóðaratkvæðagreiðslu sem frægt er orðið. Þorvaldur ber hinsvegar hausnum við steininn og reynir með rangupplýsingum að koma því inn hjá fólki að hann sé beittur ranglæti í málinu.

Stjórnarskrá Íslendinga sem þeir samþykktu 1944 með 98 % atkvæða hefur dugað þeim ágætlega með áorðnum breytingum til þessa dags. Allar breytingar á henni þurfa að gerast hægt með víðtækri sátt. Bull og ofstækismálflutningur Nýkrata á borð við prófessor doktors Þorvaldar Gylfasonar eru ekki leiðin til árangurs í þeim efnum frfekar en öðrum.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922