fara fram á útvarpi Sögu þar sem Pétur Gunnlaugsson fer mikinn í að biðja hlustendur um að styrkja Útvarpið þar sem einhver vandræði steðji að því. Það væri vissulega eyrnasviptir að því af það hætti vegna blánkheita.
En þarf útvarpið ekki að birta ársreikning sinn svo að styrktaraðilar sjái í hvað styrkirnir fara. Svipað og NPR í Bandaríkjunum sem lifir á styrkjum almennings?
Þessir cirka 10 manns sem eru síhringjandi inn sem þjóðarálitið fara hamförum af vandlætingu út í Forsetann sem skipi ekki utanþingsstjórn eða hvað annað af því að ekki er mynduð ríkisstjórn einn tveir og þrír eru orðnir býsna leiðigjarnir. Það er eins og allt sé að farast.
Samt er bara allt í himnalagi í þjóðfélaginu í dag eins og það var í gær. Það batnar kannski seinna þegar búið er að ná lendingu. En auðvitað verður fólkið að hafa eitthvað að tala um úr því að ekki er í móð lengur að hakka á Panama-og Pardísarskjölunum eða Bjarna og Sigmundi Davíð,
Er ekki bara allt í lagi þó að flokkarnir taki sér tíma. Rasi ekki um ráð fram eins og síðast varð upp á teningnum. Um síðir kom í ljós að við fengum köttinn í sekknum og óhæft fólk leyndi á sér og sveik lit við fyrst tækifæri. það blasir nokkuð við núna í ljósi sögunnar að það getur borgað sig að flýta sér hægt.
En á meðan halda þessar kostulegu umræður áfram hjá þessum 10 þjóðspekingum eða svo.