Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Flóttamannafasistar

$
0
0

góða fólksins sameinast í árásum sínum á Ásmund Friðriksson þingmann Sjálfstæðisflokksins.

Fyrir það eitt að ræða kostnað af hælisleitendum í samhengi við innlenda örbirgð?

Það er ráðist að Ásmundi og hvatt til útstrikana á honum í kosningunum.

Það kom mér ekki á óvart þó að flokkssystur hans þær  Unnur Brá og Áslaug Arna færu framarlega í flokki þeirra sem ráðast að Ásmundi að þessu tilefni og reyna að slá sig til riddara í ljósi lítils fylgis síns meðal kjósenda.

Mér líða ekki úr minni skrílslæti þeirra tveggja á síðasta Landsfundi Sjálfstæðisflokksins þegar þær dönsuðu stríðsdans um gólfið  og æptu ókvæðisorð að þeim ræðumönnum sem vildu ræða flóttamannamálin frá annarri hlið en þeim þóknanlegri. 

En umræðum um þennan málaflokk hafði verið troðið aftast á dagskrá fundarins með greinilega skipulögðum hætti til þess að fámennt væri orðið eftir í salnum og fátt til varna gegn skipulagðri árás þeirra stalla og réttum skoðunum góða fólksins.

Öllum heilsýnum mönnum er ljóst af lestri skrifa Ásmundar að hugleiðingar hans eiga fyllsta rétt á sér. Ég styð hann heilshugar og finnst illt að horfa á annars réttsýna menn missa fótanna í upphlaupinu.

Því miður er ég ekki í útstrikunarfæri við neina þá sem ég vildi vegna þessa máls.  En geymt er ekki gleymt og hugsanlega koma dagar og koma ráð.

Hjá mér er þjóðin og  íslensk örbirgð í forgangi fyrir  tilhæfulausum hælisleitendum og því endemis verkleysi sem við höfum sýnt í meðferð þessara mála.

En flóttamannafasistar munu aldrei fá mitt atkvæði  gegn íslenskum hagsmunum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922