er í raun það sem þessir flokkar eru að bjóða okkur í kosningunum komandi.
Svo mælir Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar:
" „Samneyslan skapar flestum landsmönnum frelsi. Hún tryggir stærstum hluta almennings áhyggjulítið og innihaldsríkt líf. Við gætum þó með sanngjarnara skattkerfi gert enn betur. Hægt væri að tryggja öllum betri skólagöngu, ódýrari heilbrigðisþjónustu, áhyggjulaust ævikvöld og margvísleg önnur lífsgæði.
Skattgreiðslur eru skynsamlegasta fjárfesting langflestra Íslendinga á ævinni. Í samneyslunni birtist það fallegasta í mannlífinu; samkennd og samhjálp. […] Við þurfum líka fóður fyrir andann. Því verða stjórnvöld líka að hafa metnað fyrir hönd íþrótta, menningar og lista. Ekki líta á þær sem einhvern lúxusvarning eða afgangsstærð.“
Smári McCarthy líkir öllum eignum þjóðfélagsins við hlaðborð sem bara megi moka af. Allt sem þjóðin á eða eignast nokkru sinni er fyrir stjórnmálamenn að moka af í sín hugðarefni.Einstaklingurinn fær aðeins þær ruður sem af kunna að ganga. Það er ríkið sem á allt og allt sem af gengur eru bara ónýttir skattstofnar og tekjur sem ríkið afsalar sér.
Katrín Jakobsdóttir ætlar að taka 70 milljörðum meira til ríkisins en nú er gert. Enginn venjulegur gjaldandi á að borga. Hún svarar hinsvegar ekki spurningum Bjarna Benediktssonar um það hverjir eigi að borga ef allur tekjuskattur allra fyrirtækja landsins nemi nú þegar sömu upphæð. Hvaðan á tvöföldunin að koma?
Ríkið og stóri bróðir á allt. Einstaklingurinn á ekki neitt. Þannig hugsa þessir flokkar í grunninn.
Þetta er hið fyrirheitna ríki Vinstri Grænna,Samfylkingarinnar og Pírata.
1984 Orwells á leið til Íslands 2017.