eins og sumt af Góða fólkinu virðist andsetið af.
Svo segir í Mogga á forsíðu:
"„Vændi er orðið stór iðnaður á Íslandi og vaxandi og einnig eru hér kjöraðstæður vinnumansals, þ.e. bæði uppgangur og skortur á vinnuafli,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur hjá lögreglunni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu heldur í dag ráðstefnu um mansal undir heitinu Þrælahald nútímans og miðla sjö erlendir sérfræðingar af reynslu sinni og þekkingu á þessari stærstu ráðstefnu um mansal sem haldin hefur verið hérlendis. „Um er að ræða einstaklinga sem hafa mikla þekkingu og reynslu af baráttunni gegn mansali, lögreglumenn, saksóknara og sérfræðinga í vinnu með fórnarlömbum, segir Alda.
Henrik Holm Sørensen, yfirmað- ur mansalsrannsókna í Danmörku, er einn þeirra sérfræðinga sem ávarpa ráðstefnuna en að hans sögn eru mansalsmál bæði mann- og tímafrek í rannsókn. „Okkar reynsla er einnig sú að erfitt getur reynst að fá sakfellingu á grundvelli mansals. Þetta eru erfið mál sem kalla á þolinmæði og nokkurn mannskap til að rannsaka.“
Hvað er eiginlega Löggan að halda ráðstefnur um svona mál? Hvaðan kemur fé til þessa? Hvaða stjórnvald heimilar svona viðburði? Útlendingur fenginn til að glæpavæða vændi og gera það að mansali?
Vændi er oft sagt vera elsta atvinnugrein mannkyns. Það er ekki ný tilkomið á Íslandi. Vændi er virðingarverð atvinna fjölda fólks um allan heim. Oft eina úrræði fátæks fólks. Eða einbeitt leið dugandi fólks út úr fátæktarbasli. Atvinnugrein sem á að njóta viðurkenningar og verndar eins og önnur frjáls atvinnustarfsemi.
Það er fáránlegt að glæpavæða þessa starfsemi heldur á hún að njóta fullra réttinda og vera uppi á borðinu allra hluta vegna.
Þjóðverjar hafa vændi löglegt og segja það nauðsynlegt til að draga úr vissri tegund af glæpum. Lögverndun starfsins gerir vændisfólki kleyft að forðast glæpamenn sem eru allstaðar mættir þar sem vændi er gert ólöglegt. Alveg eins og Mafíurnar kúga verndargjald af heiðarlegum borgurum ef þær komast upp með það. Þá er oft eina leiðin sú sem Björgólfur Thor lýsir samskiptum sínum við glæpamenn í Rússlandi að þinn verndari verður að vera virtur af minni spámönnum og sjá um að halda þeim frá þegar lögreglan gerir það ekki sem hún ætti að gera. Lögreglan á að vernda borgarana en ekki að halda ráðstefnur um það.
Hvað hyggst okkar lögregla fara að gera á Íslandi í vændismálum? Væri úr vegi að það yrði upplýst svo að fólk skilji tilgang og kostnað af því að halda svona ráðstefnu?
Vændi er hættuleg atvinnugrein og þeir sem leggja það fyrir sig verða að hafa mikinn kjark og yfirvegun. Slíkir einstaklingar í öðrum atvinnugreinum eru kallaðir athafnaskáld og njóta virðingar og verndar þangað til að þeir fara á hausinn, þá eru þeir sendir í tukthús sem er önnur saga.
Það er fáránlegt að láta einhverjar heimaaldar kellingar stjórna þessum málaflokki á Íslandi og glæpavæða hann eins og gert er að sænskri fyrirmynd, sem er sú vitlausasta af öllum vitlausum að sjálfsögðu og nægir að horfa á sænsk innflytjendamál til samanburðar.
Það er ekki vændisfólkið sjálft eða viðskiptavinir þess sem er sekt. Það eru glæpamennirnir sem reyna að kúga þetta fólk sem er í einkamálaviðskiptum sem engum koma við nema því sjálfu.
Vændi er nefnilega ekki sama og mansal glæpamanna.