Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Það hægt að blekkja

$
0
0

marga stundum.Það er ekki hægt að blekkja alla alltaf.

Útvarp Saga spurði: Viltu sjá Katrínu Jakobsdóttur bjóða sig fram til Forseta Íslands?

Nei sögðu 86,6% 1268 atkvæði
 
Já sögðu 10,8% 158 atkvæði
Hlutlaus voru 2,7% 39 atkvæði
 
Og aumingja Katrín sem var farin að segja frá því upphátt að menn hefðu komið að máli við sig osfrv....

Landsmenn virðast sjá í gegn um þessa leikfléttu Steingrims J. Sigfússonar um að hún Katrín verði Forseti um leið og hann tekur við formennskunni í VG aftur.

Það er eins og menn rámi í það þegar hann setti fallegu brúðuna sína fyrir sig í formannsstól VG. Fjarstýringin hefur verið fleirum sýnileg en manni datt í hug. Var þó minna áberandi en hjá þeim Baldri og Konna á sinni tíð.

VG er flokkurinn hans Steingríms sem hann stofnaði og stjórnar með styrkri hendi. Sorrý Katrín mín, þetta er ekki að takast hjá þér.Hlustendur á Útvarpi Sögu virtust sjá rauðu komma-úlfshárin gægjast upp úr kraga Katrínar með Kristsásjónuna.

Það er kannski ekki hægt að blekkja alla endalaust?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922