kom í Sjónvarp til að ræða framtíð sjúkraflugs án Reykjavíkurflugvallar.
Blessaður læknirinn blánkaði sig gersamlega með því að hafa greinilega ekki kynnt sér hvað þyrlur geta og hvað ekki. Þyrlur geta ekki flogið við ýmis veðurskilyrði sem eru algeng á Íslandi þegar jafnvel flugvélar eiga í basli. Margoft hefur verið teflt á tæpasta vað á neyðarbrautinni sem Dagur Borgarstjóri lét loka af fullkomnu ábyrgðarleysi gagnvart mannslífum sem hann hefur samt unnið Hippokratesareið að því að reyna ávallt að bjarga. Hann setti á ræður um þyrlupalla á þökum sjúkrahúsa sem lausn á flutningi sjúklinga upp á líf eða dauða og vitnaði í veðurblíðari lönd því til stuðnings. Eru mannslíf mæld með prósentureikningi hjá þessum lækni? Það sé nóg að bjarga hluta fólks þó eitthvað verði að afskrifa vegna veðurs?
Því miður hefur þessi Borgarstjóri ekki greinilega gripsvit á flugi yfirleitt og því eðlilegt að kjósendur spyrji sig hvernig sé þá með önnur hversdagslegri mál.
Í kosningum að vori gefst kjósendum tækifæri að láta í ljósi skoðun á hugsanablánkheitum þessa Borgarstjóra að því gefnu að eitthvert raunverulegt val verði í boði.