ára kínverskur ríkisborgari hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi, fyrir að hafa ekið bíl of hratt inn á einbreiða brú miðað við aðstæður þar sem snjór og krapi var á veginum og án nægilegrar aðgæslu þannig að hann hafði ekki fulla stjórn á bílnum.
Bíll sem maðurinn ók skall framan á vinstra framhorn bíls sem ekið var í gagnstæða átt og átti skammt ófarið yfir brúna með þeim afleiðingum að bílstjóri síðarnefnda bílsins hlaut mikla áverka á brjósti og lést skömmu síðar.
Um er að ræða banaslys sem varð laugardaginn 26. desember á síðasta ári á einbreiðri brú á Hólá í Öræfasveit.
Þess er einnig krafist að maðurinn verði sviptur ökuréttindum. Málið var þingfest fyrir héraðsdómi Suðurlands í síðustu viku og sætir ákærði farbanni til 22. apríl. "
segir í frétt Morgunblaðsins.
Kannski á maður ekki að blogga um svona hörmulegan atburð sem enginn ætlaði sér að taka þátt í. Sorglegt, hræðilegt.
En það er framhaldið. Hvað bíður Kínverjans heimkomins? 9 mm.? Er einhver sem veit það? Getum við yfirleitt sent hann heim 29 ára gamlan að afplánun lokinni?