Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Stórfurða Styrmis

$
0
0

birtist í skrifum hans í Mogga í dag.

Þar lætur hann lærða vini sína komast að þeirri niðurstöðu fyrir sig og með sér, að nútíma þjóðir eigi að fara að borga fyrrum nýlendum sínum bætur fyrir skaða sem þær ollu þeim á árum áður. Á þann hátt væntanlega eigi Grikkir að fá stríðsskaðabætur frá Þjóðverjum og fleiri líklega. Væntanlega skulda Þjóðverjar þá Rússum og Íslendingum fyrir havarí sem þeir ollu við sama tækifæri. Bandaríkjamenn skuldi Afríku vegna þrælahaldsins á sléttunum miklu, við skuldum Evrópubúum vegna ránsferða Egils Skalla og fleira illþýðis héðan og hver veit hver á að borga fyrir Djengis Kahn eða Rómverja? 

Varla má skilja tillögur ritstjórans öðruvísi en að það sé skylda þessara fyrrum nýlendukúgara að opna allar gáttir fyrir hælisleitendum frá þessum ríkjum og sjá þeim fyrir betra lífi. Skulda ég Danakóngi eitthvað vegna þess að Torfi í Klofa drap Lénharð fógeta fyrir honum? Hvernig á ég að verðleggja tjónið sem hann forfaðir minn varð fyrir vegna einokunarverslunar Danakóngs á sínum tíma? Hversvegna ber núlifandi Breti skaðabótaábyrgð til Spánverja vegna þeirra umsvifa Nelsons á HMS Victory að skjóta göt á spánska flotann? Ég get ekki alls ekki tengt fortíð við nútíð eða óhjákvæmilega framtíð með þeim hætti sem ritstjórinn gerir því varla sér hann fyrir sér að allt þetta verði staðgreitt af núverandi sjóðum?

Nútímamenn geta ómögulega skuldað núlifandi fólki í fjarlægum löndum nokkuð vegna misgjörða forfeðranna.Bæði er slíkt óútreiknanlegt og ekki nokkur rökræn tenging milli Gizurar Jarls frænda míns og Sturlu Sighvatssonar við það að ég verði að fara að gera upp við afkomendur Sturlu nettóið á Flugumýrarbrennu og Örlygsstaðabardaga? Hvað þá að Trump eigi að fara að borga fyrir Sitting Bull, Merkel fyrir Hitler og þannig má áfram telja.

Hugmyndir ritstjórans um skuldir nútímans við fortíðina eru að mínu mati aðeins stórfurða Styrmis um óraunhæfu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922