eða svipting atvinnuþekkingar virðist vera efst á baugi hjá þeim sem djöflast á Róberti Árna.
Maður þessi beitti engan ofbeldi, nauðgaði engum heldur keypti sér það sem hann gat keypt.Sem ekki var sjálfsagt við hæfi.
Hann er stöðugt milli tannanna á góða fólkinu vegna þess að hann er lærður lögfræðingur og má aftur vinna á þeim vettvangi. Hann mætti til dæmis rukka alveg eins og að dæma í sakamálum. Nei, hann skal skila ærunni aftur og vera hrakinn allstaðar.
Annar maður nauðgaði fósturdóttur sinni nær daglega til fullorðinsára. Hann fékk líka uppreisn æru um leið og Róbert Árni. Hans nafns er hvergi getið. Fæstir vita hver hann er eða hvað hann má gera og ekki gera. Öllu góða fólkinu virðist sama um það. Er hann betri eða verri en Róbert Árni?
Gyðingar sættu Berfufsverbot(sviptingu atvinnuréttinda) í þriðja ríkinu. Er góða fólkið hér eitthvað betra?