Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Varhugur

$
0
0

er eitthvað sem leiðbeinir fólki þegar það veit af mögulegri hættu.

Páll Vilhjálmsson bloggkonungur skrifar svo:

" Hryðjuverkum Ríkis íslams fjölgaði á síðasta ári miðað við árið á undan, samkvæmt skýrslu rannsóknarstofnunar um hryðjuverk. Guardian segir frá niðurstöðum skýrslunnar.

Ríki íslams stóð fyrir um 1400 hryðjuverkaárásum sem kostuðu um 7000 mannslíf. Það er 20 prósent aukning frá árinu 2015.

Vitnað er í hvatningu eins talsmanns Ríkis íslams, Abu Muhammad al-Adnani: Ef þið finnið ekki sprengju eða byssukúlu notið stein til að drepa vantrúaða Ameríkana, Frakka og bandamenn þeirra eða hníf eða keyrið þá niður.

Áköll af þessu tagi vekja til dáða suma trúaða múslíma á vesturlöndum sem snúast gegn meðborgurum sínum og drepa saklaus börn, gamlamenni og ekki síst konur."

Er ekki ástæða til að taka á móti fólki til Íslands sem ber arabísk nöfn og eru múslímar með öðru hugarfari en hverjum öðrum ferðamönnum? Þurfa yfirvöld ekki að skoða þetta fólk nánar en annað fólk sem hingað kemur?

Þarf ekki hugsanlega að gjalda meiri varhug við sumum gestum en öðrum sem til landsins koma? 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922