Það er eins og að Farísealiðið hafi ekki lesið það sem Sveinbjörg sagði í viðtalinu við Arnþrúði:
Í staðinn tönnlast þetta lið á hugstakinu sokkinn kostnaður eins og það sé inntak mannvonsku og rasisma frú Sveinbjargar. Af hverju ekki að að leita að kjarna skynseminnar sem birtist í þessum orðum:
" Væri ekki börnunum fyrir bestu að tekið sé tímabundið á móti þeim í sérskóla þar sem þau fengju fulla athygli og kennslu?
---
" ...Kennarar og félagsráðgjafar sem ég hef rætt við að þeir hafa talað um hversu vandmeðfarið og hversu mikill kostnaður fylgir því að taka á móti börnum sem eru í leit að alþjóðlegri vernd og styðja þá auðvitað til að læra íslensku og komast af stað í námi. Þetta er mismunandi eftir því hvort þetta séu stelpur eða strákar, vegna þess að svo eru þau kannski farin eftir 6 mánuði, 12 mánuði, 1 ár 2 ár þegar búið er að vísa fjölskyldunum úr landi, þá er þetta að einhverju leyti sokkinn kostnaður hjá Reykjavíkurborg.
-
...En þegar þau eru sett inn í bekki vegna þess að við erum með stefnu skóla án aðgreiningar, að þá verður mjög mikill fókus af þessum hópi inni í bekknum sem þarf stuðning, mjög margir sem eru á einhverfurófi, eru með athyglisbrest eða þurfa sérstaka aðstoð í námi sem að fá hana kannski ekki vegna þess að fókusinn er á öðru. Þess vegna hefur þeirri hugmynd skotið upp hvort það sé eðlilegt að það sé bara sérskóli stofnaður sem taki við þessum börnum sem eru að koma með foreldrum í leit að alþjóðlegri vernd. Síðan þegar fjölskyldan er komin með dvalarleyfi á Íslandi, þá fari þau inn í skólana. ..."
Þetta dugði frú Guðfinnu til að reka hnífinn í bak pólitísks velgjörðamanns síns og reyna að fella hana úr oddvitasætinu. Kratanum Loga auðvitað til að vekja athygli á sinni aumu pólitísku tilveru í skugga konu sinnar sem aðstoðarmanns forsætisráðherra, einskonar frú Macron og Henry prins tilveru.Og svo legíó af litlum poppurum til viðbótar.
Hvernig er hægt annað en að skilja þetta sem orð hugsandi manneskju sem er að leita leiða til að bæta slæmt ástand með hagmuni allra fyrir augum? Er þetta nóg til að þurrka út allt sem frúin er búin að gera á kjörtímabilinu?
Er ekki rétt að athuga hvað Sveinbjörg sagði og hvað hún sagði ekki?