Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Heimurinn svínar á Bandaríkjunum

$
0
0

eins og hann hefur alltaf gert. Enda verður hann vitlaus þegar Trump forseti segir hingað og ekki lengra.

Wilbur Ross, billionerinn sem  er viðskiptaráðherra Bandaríkjanna (U.S. Secretary of Commerce) sagði að viðskiptafélagar eins og Kína og Evrópusambandið segist vera með frjálsri verslun en séu það ekki. 

“Margar ríkisstjórnir um allan heim hafa rekið pólitík sem er ósanngjörn gagnvart bandarísku verkafólki  og fyrirtækjum,” Ross wrote on opinion page of The Wall Street Journal. “Fyrir þessi stjórnvöld hefur Trump forseti skýr skilaboð.Það er kominn tími til að endurskipuleggja viðskiptastefnu ykkar frjálsa og gagnkvæma.”

Ross sagði að tollar Kína sé hærri en Bandaríkjanna á 20 af 22 sviðum svo sem sykri, fatnaði, bómull, fötum . flutningatækjum og vélum.  Evrópusambandið leggur á hærri tolla en Bandaríkin á 17 af 22 sviðum  eins og dýraafurðum,sykri, vélum og efnavörum.

“ESB leggur +a 10 prósent toll á innfluttar bandarískar bifreiðar meðan Bandaríkin leggja aðeins á 2.5 % á innfluttar bifreiðar frá Evrópu segir Ross. “Í dag flytur ESB 1.14 milljónir evrópskra bíla til Bandaríkjanna nærri fjórum sinni fleiri en Bandaríkin flytja til Evrópu.”

Burtséð frá þessu sláandi misvægi í tollum þá eru líka aðrar viðskiptahindranir sem auka kostnað bandarískra fyrirtækja sem vilja eiga viðskipti við Kína og Evrópu. Þessar hindranir eru  íþyngjandi og ógagnsæjar reglur til að skrá og fá samþykkt leyfi fyrir innflutningi, óvísindalegar heilbrigðisreglur,kröfur um að fyrirtæki byggi innanlands verksmiðjur og áneydd yfirfærsla tækniupplýsinga meðal annars sagði Ross.  

 

“Bæði Kína og Evrópa fjármagna útflutning sinn með styrkjum, lágvaxta lánum,orkustyrkjum,sérstökum skattaendurgreiðslum og fasteigna sölum og leigu fyrir neðan markaðsverð á meðal annars sagði Ross. “Sambærilegir ríkisstyrkir þekkjast ekki í Bandaríkjunum.”

Ríkisstjórn Trumps hefur lagt til 54 viðskiptalagfæringar  til að rannsaka ósanngjörn viðskipti. Bandaríkin hafa sett fram 403 kvartanir við 42 ríki sem eru í samræmi við reglur alþjóða viðskiptaráðsins. Því miður túlka meðlimaríkin þetta sem verndarstefnu Bandaríkjanna. En þarna er Trump aðeins að framkvæma það sem hann lofaði í kosningabaráttunni sem venjulegir stjórnmálamenn eins og við þekkjum þá eiga ekki að venjast.

“Alþjóðaviðskiptaráðið á að vernda frjáls og sanngjörn viðskipti milli ríkja, ekki ráðast á þessar viðskiptaleiðréttingar  sem miða að jafnræði" sagði Ross. “Að verja bandaríska verkamenn og fyrirtæki gegn þessum árásum má ekki mistúlka sem verndarstefnu.”

 

 

Hér er verið að tala beint til Íslendinga. Við höldum úti mikilli mismunun gagnvart bandarískum vörum  á mörgum sviðum þar sem við eru taglhnýtingar viðskiptasvínanna í þýska Evrópusambandinu sem þoldu ekki að hlusta á Ross tala og skrúfuðu fyrir hann í sjónvarpinu eftir 20 mínútna lestur hans. Öll mismunum  okkar Íslendinga gagnvart Bandaríkjunum er  til háborinnar skammar gagnvart okkar mestu vinaþjóð sem eru Bandaríkin sem vernduðu okkur fyrir ekki neitt í mörg ár gegn margri vá.

Ef að ríkisstjórn  okkar myndi einu sinni hysja upp um sig buxurnar og gera eitthvað í að leiðrétta þá ósanngirni sem hér ríkir að fyrra bragði og án þess að láta neyða sig til þess þá væri það drengileg gerð og okkur til sóma. En hver býst við einhverju af kratískri ESB-Viðreisn eða þá Óttari Proppé, hvað sem þessi flokkur hans heitir annars.

Sjálfsagt gerir ríkisstjórnin ekkert í þessu og við höldum áfram Íslendingar að svína á Bandaríkjunum eins og heimurinn hefur verið að gera sér til skammar.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922