á undirskriftaskjali þar sem skorað yrði á stjórnvöld að endurskoða lögin um viðtöku flóttamanna og hælisleitenda í því skyni að þrengja skilyrði til veitingu íslensks ríkisborgararéttar.
Þátttakendur hvettu stjórnvöld til að standa vörð um menningarsögu þjóðarinnar og íslenska tungu.Fjölmenningu verði hafnað og stefnt skal að því að í landinu skuli búa sem einsleitust og hægt fjölgandi þjóð svo sem verið hefur.
Innflytjendur verði valdir með það fyrir augum að þeir geti fallið sem best að íslensku þjóðfélagi hvað lífsviðhorf og menningu varðar. Það felur í sér að innflytjendur af Indo-Germönskum uppruna hafi forgang og menningarstig og menntun skuli vera þáttur í slíku mati.
Okkur vantar tillögu að texta sem fjöldinn getur sætt sig við til þess að reisa varnir gegn hinni ágengu fjölmenningarstefnu sem hér er rekin í andstöðu við vilja þjóðarinnar.
Fólkið verður að rísa upp og láta okkar vilja í ljós. Hundraðþúsund undirskriftir gætu hugsanlega hreyft stjórnvöld til að láta af núverandi stefnu sinni í innflytjendamálum.
Hvaða texta getum við haft á slíku skjali sem fólk gæti sætt sig við en skilst fyllilega?