Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Hver selur Gróttakvörnina sína?

$
0
0

Það virðist vera er staðreynd að peningaframleiðslan hefur verið framseld frá Seðlabanka Íslands til bankastofnananna.

Seðlabankinn hefur einkaleyfi til að prenta seðla og slá mynt. Gallinn er bara sá að seðlar og mynt eru orðinn kannski tíundi hluti peningamagnsins í umferð.  Hafa ekki bankarnir bara tekið við peningaframleiðslunni.Búa þeir ekki einir til rafeyrinn sem þjóðfélagið notar?

Stendur eitthvað á bak við krónnuna? Nokkuð nema þegjandi samkomulag að bankamillifærsla sé fullnægjandi greiðsla. Og það er hægt að fá seðla líka í bönkum þótt þú getir ekki borgað með þeim hjá símanum.

Er þetta ekki bara allt blekking?

Bankaleyfi er núna jafngilt því að hafa fengið leyfi til að framleiða peninga. Og það er hægt að græða peninga á peningum ef einhvern vantar þá.

Í ævintýrinu mínu gamla  var til kvörn sem kallaðist Grótti. Hún malaði bæði gull og silfur. Svo gat hún líka malað malt og salt ef heitið var á þann vonda og auðvitað endaði sagan á hafsbotni til þess að enginn færi burt með hugmyndir um auðvelda peninga.

Núna gengur peningaframleiðsla á Íslandi svona fyrir sig:

Ég fer í bankann og hann veitir mér milljón að láni. Hann skrifar milljón á reikninginn minn og tekur tryggingu í húsinu mínu til þess að ég borgi. Hann færir á höfuðstólsreikning hjá sér milljón í credit. Hvað hefur gerst?

Liggur ekki í augum uppi að milljón er fædd úr engu? Efnahagur bankans hefur styrkst. Um hver mánaðarmót tekur bankinn svo tíuþúsund( eitt prósent) til baka af reikningnum mínum og debet inn á höfuðstólsreikning sinn. Halló hagvöxtur!  Mín eign hefur rýrnað um tíuþusund en hans skuld á höfuðstólsreikningi hefur lækkað um sama og efnahagur styrkst. Eftir tíu ár borga ég lánið upp og er þá búinn að borga bankanum tværmilljónir. Kannski keypti ég vöru fyrir upphaflegu milljónina og seldi hana með gróða. Segjum að ég hafi grætt milljón á miljóninni.Urðu ekki til þrjármilljónir á þessu brölti? Er það ekki hagvöxtur?

Hvoru megin borðsins vilt þú vera? Bankamegin eða mín megin?

Nú tala sumir eins og það sé ómögulegt að eiga svona Gróttakvarnir.  Það verði að selja allar svona myllur á grundvelli hugsjónarinnar um einkavæðingu. Bara einhverjum. Ríkið á núna tvö stykki. Það er viðþolslaust að losna við þær. Það vantar bara einhvern til að Borga þær.Og með hverju? Er ekki tilvalið að fá  bara lánað í hinum bankanum til að kaupa þennan? Þá er maður orðinn kjölfestufjárfestir og endar kannski á Kvíabryggju eftir næsta krass?

Í alvöru. Er það venja til sveita að selja nythæstu kúna? Hvort seldi Rockefeller olíulindir eða olíu?

Hver selur Gróttakvörnina sína?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922