koma fram í grein Bolla Héðinssonar í Fréttó á dag:
Þessi sjónarmið eiga líklega greiða leið að ríkisstjórnarborðinu.
Bolli hagfræðingur segir:
" ...Aðrar þjóðir sem áður voru í svipaðri stöðu hafa brugðist við sveiflum sem þessum. Fyrst með myntsamstarfi og svo sameiginlegum gjaldmiðli. Íslendingum stendur til boða að taka þátt í slíku myntsamstarfi sem myndi eyða mestu sveiflunum í verðlagi inn- og útflutnings auk þess sem vextir myndu lækka og hægt yrði að afnema verðtryggingu.
Síðan ef vel tekst til þá byðist þjóðinni að vera fullgildur aðili að útgáfu sameiginlegs gjaldmiðils. Gjaldmiðillinn heitir evra og samstarfsvettvangurinn heitir Evrópusambandið – það er fíllinn framsóknarflokkanna."
Nú háttar svo til að Byggingavísitala lækkar á Íslandi mánuð eftir mánuð. Sveiflan er öfug þó Grímur heimti gengisfall og ferðapostular vilji hafa allt sem ódýrast fyrir útlendingana.
Fyrir liggur hvernig Evran "bjargaði" Grikkjum, Spánverjum og Portúgölum. Menn missa vinnuna þegar engar evrur eru fáanlegar. Gengisfelling íslensku krónunnar hefur alltaf verið velferðaraðgerð í sögunni. Hún dreifir áföllunum jafnt á allt þjóðfélagið meðan Evran færir bara þeim sem verða atvinnulausir allt áfallið.
Skyldi vera mikið fylgi við að Íslendingar kíki í pakka ESB sérstaklega eftir nýjustu ummæli Junckers um sameiginlegt borðhald?
Trúa menn bjargfast á bjargráð Evruspekinganna