og allt sem því fylgir?
Halda menn að Gústaf Skúlason sé að gera grín að okkur í Mogganum í dag?
"Ummæli nýkjörins Bandaríkjaforseta um innflytjendavanda Svíþjóðar kom heldur betur við kaun sænskra yfirvalda. Hjartans mál sósíaldemókrata - mannúðarstórveldið - fékk á sig kastljós heimsins og ekki er allt jafn fallegt og sænskir ráðamenn sögðu. Atvinnumálaráðherra Svíþjóðar, Ylva Johansson, sagði við BBC að nauðgunartölur í Svíþjóð væru á »niðurleið, niðurleið og niðurleið«. Var hún þar m.a. að mæta fullyrðingu Nigels Farage að Malmö væri höfuðborg nauðgana í heiminum. Sænska utanríkisráðuneytið kom með fullyrðingar um að engin s.k. »no-go-svæði« væru til í Svíþjóð. Í raun væru öll svæði í Svíþjóð »go-go-svæði«, þar sem gott væri fyrir alla að vera.
Afneitun sænsku ríkisstjórnarinnar á innflytjendavanda Svíþjóðar hefur ekki orðið til að leysa vandamálin, t.d. á lögreglan fullt í fangi að berjast við vaxandi glæpaklíkur í stórborgunum og hefur lögreglan sent frá sér neyðarkall til yfirvalda vegna manneklu og fjárskorts. Í skýrslu lögreglunnar um öryggisástandið er talað um 53 sérstök hættusvæði í Svíþjóð en þangað fara ekki starfsmenn slökkviliða eða hjúkrunarfólks án lögregluverndar, þaðan af orðin »no-go«. Ylva Johannesson neyddist til að leiðrétta röng skilaboð um nauðganir og taldi tyrkneski rithöfundurinn Thomas Gur, að málshátturinn »þú getur misst augað þegar þú málar augabrýrnar« hefði átt við í því tilviki. Það vildi ekki betur til, að þegar umræðan stóð sem hæst, þá dundi yfir hrina ofbeldisverka m.a. með uppþoti í Rinkeby í norðurhluta Stokkhólmsborgar, skotárásum í Malmö og Stokkhólmi ásamt nýjum bílaíkveikjum í norðurhluta Stokkhólmsborgar.
Stefna sænskra stjórnvalda að afneita tengingu glæpaverka við innflytjendur er til skaða fyrir innflytjendur. Löghlýðnir borgarar liggja undir grun þegar ekki má segja hverjir glæpamennirnir eru. Ríkisstjórn Svía hefur neitað að láta fara fram rannsókn á málinu, vegna þess að slík rannsókn »muni ekki sýna fram á neitt nýtt«. Vaxandi andstaða er hjá almenningi gegn afneitun yfirvalda, sem birtist m.a. í sérlega góðum móttökum á nýrri bók Tino Sanandaji »Massutmaning« um tengingu innflytjendavandamála við aukna glæpatíðni í Svíþjóð. Þar tekur Sanandeji málefni innflytjenda heildartökum og skýrir vaxandi glæpastarfsemi í Svíþjóð aðallega hjá innflytjendum, sem fæddir eru í löndum utan Evrópu. Sýnir hann fram á djúpa gjá milli innflytjenda og annarra Svía varðandi atvinnumál, efnahagsmál og afkomumál. Styrkir bók hans þá mynd sem sænsk yfirvöld reyna að fela, að aðlögun innflytjenda í Svíþjóð gengur á afturfótunum og hlutskipti þeirra er langtum lakara en annarra í Svíþjóð:
»Um 17% íbúanna eru fædd erlendis og um 5% eru önnur kynslóð innflytjenda. Þrátt fyrir þetta eru 53% afbrotamanna, með lengstu fangelsisdóma, fæddir erlendis, 54% atvinnulausra eru fædd erlendis og 60% útborgaðra félagsbóta fara til þessa hóps. 71% heimila með barnafátækt tilheyrir heimilum af erlendum uppruna samtímis sem 76% meðlima í glæpahópum tilheyra innflytjendum.« <ská>(Af baksíðu bókarinnar Massutmaning).
OECD gagnrýnir Svíþjóð fyrir slappleika í aðlögun innflytjenda í samfélagið, en innflytjendum gengur erfiðast að fá vinnu í Svíþjóð af öllum ríkjum OECD. Lögreglumenn, sem gefist hafa upp á að tala fyrir daufum eyrum yfirmanna og stjórnvalda, segja í ríkari mæli sjálfir frá ástandinu í blaðagreinum og á félagsmiðlum. Nýjasta dæmið er rannsóknarlögreglumaðurinn Peter Springare, en stuðningshópur hans varð á fáum dögum að þriðja stærsta hópi Svíþjóðar á Facebook með yfir 220 þúsund meðlimi. Skv. Eurostat hefur Svíþjóð einungis helming lögregluliðs miðað við önnur ríki.
Auknar umræður í Svíþjóð, um rót og eðli glæpavandans, sýna að vitund margra hefur vaknað til að taka á málunum. Lögfræðingar benda á að einungis 14% allra kærðra mála eru upplýst, sem sýnir að Svíþjóð hefur yfirgefið ýmis lög ríkisins. Einungis 2,1% skemmdarmála, 3,5% af heimilisinnbrotum og 12,6% af ofbeldismálum eru leyst: »Þegar fólk upplifir að lögreglan getur ekki haldið uppi lýðræðislega ákveðnum lögum hreyfum við okkur að hættumörkum réttarsamfélagsins. Áhættan verður mikil að sífellt fleiri óttaslegnir og hræddir íbúar taki lögin í eigin hendur eða leiðist til skjótra lausna án þess að láta sig varða grundvallarkröfur réttaröryggis.« <ská>(Sverige har i praktiken övergett vissa lagar Svd. 9/3-17.)
Vinstrimenn játa svik: »Á meðan við höfum engin svör við því hvernig á að stöðva ofbeldið eigum við heldur ekki skilið trúnað kjósenda.« <ská>(Vi i vänstern har svikit förorterna, Aftonbladet 9/3 -17.)
Innflytjendastefna sósíaldemókrata hefur beðið sögulegt skipbrot og ógnar afkomu og öryggi Svíþjóðar. Á meðan sósíaldemókratar afneita samhengi glæpa við innflytjendastefnu sína eru þeir ófærir um að leiða landið. Það mun koma þeim í koll í næstu þingkosningum. Margir fylgismenn Svíþjóðardemókrata koma úr röðum sósíaldemókrata. Stjórnmálin eru í kreppu í Svíþjóð með skipulagðri þingræðismisbeitingu meirihlutans og einelti á Svíþjóðardemókrötum, sem nú mælast stærsti stjórnmálaflokkur Svíþjóðar í ýmsum könnunum.
Hér á landi er byrjuð þöggun í fréttaflutningi. Það er ekki getið um það hvers lenskir glæpamenn hérlendir eru. Það má ekki því það stuðar elítuna.
Burt með hælisleitendur strax og þeir koma á grundvelli Dyflinarreglugerðar. Þeir eiga strax að fara til fyrsta lands í Evrópu sem þeir komu til. Flugfélögin séu gerð ábyrg fyrir vegabréfslausum strax.
Hættum fjölmenningardekrinu sem þjóðin vill ekki sjá.