Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Verðtryggðar 3.mánaða bækur

$
0
0

ættu bankarnir að bjóða fram til að koma á móts við þann þögla minnihluta sem ekki tekur þátt í lífsgæðakapphlaupinu eða kröfugerðinni í þjóðfélaginu. Vill bara fá að vera í friði með sitt.

Það heimtar ekki afnám verðtryggingar til að borga ekki til baka sem það skuldar.Það heimtar ekki vaxtalækkun á skuldir sínar því það skuldar engum neitt. Það vill bara fá að vera í friði.

Af hverju geta bankarnir ekki gert þetta lítilræði fyrir þetta fólk? Jú, þá verða þeir að sjá af einhverjum fjárhæðum  af þessu fólki þegar verðbólgan tekur kippi.sem ekki kann að verja sig með spekúlasjónum á markaði. En er það svo mikið ef að er gáð? Enda munu þeir líka áreiðanlega taka einhverju umsýsluþóknun af hverri bók.

En hvað með sanngirnissjónarmið í verðbólguskotum sem eigendur orsaka ekki? Hvað með að svona geri maður ekki eins og Davíð sagði við Friðrik.

Af hverju geta bankarnir ekki gert þetta fyrir gamlingja og þá sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér? Leyft þessu vesæla fólki að eiga sítt litla fé í öruggu skjóli fyrir öllum háflugi stjórmálaelítunnar á Íslandi?

Er það óframkvæmanlegt? Verðtryggðar 3.mánaða bækur í stað 3.ára? 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922