Í Fréttó í dag er þessi frétt:
"Heilbrigðismál Ekki verður neinu fjármagni varið til upptöku nýrra lyfja hér á landi í ár þar sem ekki er gert ráð fyrir því í fjárlögum.
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítala segir það bitna á sjúklingunum sjálfum. Guðrún I. Gylfadóttir, formaður Lyfjagreiðslunefndar, segir ekkert svigrúm á þessu ári til að taka ný lyf í notkun. Hún hafi gert heilbrigðisráðherra grein fyrir þessari stöðu. Eins og staðan sé núna verði hins vegar þau lyf sem þegar er búið að samþykkja notuð. Þau nýju bíði enn um sinn.
„Upptaka nýrra lyfja er kostnaðarsöm og öll vestræn ríki vinna nú að því að stemma stigu við kostnaði við upptöku nýrra lyfja. Við höfum tekið upp fjölda lyfja á síðustu árum. Nú er hins vegar ekki svigrúm til upptöku nýrra lyfja,“ segir Guðrún.
„Lyfjagreiðslunefnd vinnur eftir mjög skýrum ramma og það er stjórnvalda að setja fjármagn til upptöku nýrra lyfja.“
María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítalans, segir spítalann líta þetta sömu augum. „Að okkar mati mun þetta helst koma niður á sjúklingunum sjálfum,“ segir María. „Vissulega er bagalegt ef ný lyf verða ekki tekin upp hér á landi á þessu ári.“
Samkvæmt Frumtökum, samtökum frumlyfjaframleiðenda, hefur Ísland dregist aftur úr varðandi upptöku nýrra krabbameinslyfja frá árinu 2013.
Af 25 nýjum lyfjum við illkynja krabbameinum hefur Ísland tekið átta í notkun. Noregur hefur hins vegar veitt leyfi fyrir 24 lyfjum, Danir og Svíar 22 og Finnar hafa tekið upp 17 þessara lyfja.
Óttarr Proppé heilbrigðisráð- herra segir stöðuna erfiða vegna alvarlegrar framúrkeyrslu á síðasta ári. Hún sé til skoðunar í ráðuneytinu um þessar mundir.
„Það sem kom í ljós er að kostnaðurinn á árinu 2016 fór alvarlega fram úr áætlunum. Kostnaður af lyfjum er því miður vandamál og viðvarandi vandamál að upptaka nýrra lyfja verður dýrari og dýrari,“ segir heilbrigðisráðherra en bendir á að hægt sé að laga stöðuna. „Á síðasta ári var samþykkt að auka innspýtingu í málaflokkinn og við erum að skoða það núna.“
Er þetta svona dýrt að innleiða lyfin hérlendis vegna þess hversu mikið þarf að borga lyfjafyrirtækjunum?
Hvað er þá í boði fyrir mig sem krabbameinssjúkling telji minn læknir að ég þurfi önnur lyf en þau sem honum eru aðgengileg á Landsspítalanum?
1.Getur hann sent mig til Noregs með resept og látið mig sækja lyfin og smygla þeim hingað inn?
2.Getur hann sent mig til meðferðar í Noregi?
3.Eða get ég bara drepist í boði ríkisstjórnarinnar, Proppé og Bjartrar Framtíðar af því að það vantar krabbameinslyf?